|
|
Starfsmenn á skrifstofu KSÍ:
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands:
REGLUGERÐ UM MENNTUN KNATTSPYRNUÞJÁLFARA
1.1. Allir þjálfarar skulu hafa fullnægjandi og viðeigandi menntun til þeirra þjálfarastarfa sem þeir vinna.
1.2. Skilgreining á hlutverki aðalþjálfara: Aðalþjálfari skipuleggur og stjórnar æfingum flokksins sem hann þjálfar og er viðstaddur leiki liðsins. Hann er ábyrgur fyrir knattspyrnulegri stjórnun flokksins og ber faglega ábyrgð á starfi og árangri hans.
2.gr.
Menntunarkröfur
2.1. Félög skulu gera kröfur til þjálfara sinna um menntun samkvæmt eftirfarandi:
3.gr.
Mat á þjálfaragráðum
3.1. KSÍ er aðili að þjálfarasáttmála UEFA og metur því UEFA A og UEFA B þjálfaragráður frá öllum löndum Evrópu til jafns við KSÍ A og KSÍ B gráðurnar.
4.gr.
Endurmenntun
4.1. Þjálfarar með KSÍ A og KSÍ B þjálfaragráður þurfa að sækja sér endurmenntun, lágmark 15 tíma á 3 ára fresti til að viðhalda réttindunum sínum og skila inn staðfestingu því til sönnunar til fræðslustjóra KSÍ.
4.2. Fræðslunefnd KSÍ ákvarðar hvað telst gild endurmenntun til endurnýjunar á þjálfararéttindunum.
5.gr.
Mat réttinda
5.1. Fræðslunefnd KSÍ metur hvaða réttindi nám/námskeið á Íslandi og erlendis veita og hvaða réttindi útlendingar hafa til þjálfunar á Íslandi.
5.2 Fræðslunefnd KSÍ getur veitt I.-II. stigs þjálfararéttindi þeim sem hafa knattspyrnuferil að baki.
6.gr.
Undanþágur
6.1. Fræðslunefnd KSÍ er heimilt að veita undanþágu frá ákvæðum í reglugerð þessari ef veigamiklar og sérstakar ástæður liggja að baki. Slíkar undanþágur skal þó alltaf bera undir stjórn KSÍ til samþykktar.
7.gr.
Gildistaka
7.1. Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. grein laga KSÍ og öðlast þegar gildi nema grein 2.1. sem tekur gildi þann 1. nóvember 2010 en þar til gildir grein 2.1. í reglugerð KSÍ um menntun knattspyrnuþjálfara er samþykkt var af stjórn 23. apríl 2007. Við gildistöku hennar fellur úr gildi eldri reglugerð KSÍ um menntun knattspyrnuþjálfara.
Samþykkt af stjórn KSÍ 18. desember 2009
Greinargerð:
Fræðslunefnd gerir tillögu um breytingar á reglugerð KSÍ um menntun
knattspyrnuþjálfara. Breytingarnar eru í meginatriðum þær að hlutverk aðalþjálfara er skilgreint nánar og gerðar eru kröfur um aukna menntun þjálfara í flestum eldri aldursflokkum. Helstu ástæður fyrir auknum kröfum eru þær að fyrri kröfur um menntun voru í sumum tilfellum ekki nægar að mati fræðslunefndar. Fjölmargir þjálfarar hafa lokið miklu þjálfaranámi hjá KSÍ og því þykir fræðslunefnd eðlilegt að setja markið örlítið hærra og auka kröfurnar um menntun. Að auki eru felld út tímabundin ákvæði í gömlu reglugerðinni. Frestað er gildistöku á þeim greinum sem lúta að auknum menntunarkröfum þjálfara (grein 2.1.) til 1.nóvember 2010 til að gefa aðildarfélögunum aðlögunarfrest.
Fyrirhuguð námskeið
|
|
2010
|
2011
|
2012
|
I. stig
|
15.-17. janúar á Akureyri 1.-3. okt. og 8.-10. okt.
|
14. - 16. okt. og 21. - 23. okt
|
|
II. stig
|
15.-17. okt og 22.-24. okt
|
28. - 30. okt
|
|
III. stig
|
8.-10. jan. og 15.-17. jan. og 29.-31. okt
|
25. - 27. nóv.
|
|
IV. stig
|
|
28. - 30. janúar
|
Janúar/Febrúar
|
V. stig
|
23. - 25. apríl og 5. - 7. nóv
|
1. - 3. apríl og 7. - 9. okt.
|
|
VI. stig
|
|
9. - 16. janúar
|
Janúar
|
VII. stig
|
|
Febrúar - Apríl
|
Febrúar - Apríl
|
Markmannsþjálfun
|
26.-28. nóv
|
11. - 13. nóv
|
|
Grasrótarnámskeið
|
|
|
|
Sérhæfð námskeið
|
Afmælisráðstefna KÞÍ Ráðst. um þjálfun barna 12. - 13. nóv
|
4. - 6. nóv. þjálfun eftir leikstöðum
|
|
KSÍ-B próf(UEFA-B)
|
6. mars
|
8. febrúar
|
Febrúar/Mars
|
KSÍ-A próf(UEFA-A)
|
|
Febrúar
|
|
UEFA-B útskrift
|
|
|
|
UEFA-A útskrift
|
|
|
Fræðsluefni og kennslugögn Hér er að finna lista yfir fræðsluefni (bækur og myndbönd) sem KSÍ bæði selur og lánar til þjálfara og félaga endurgjaldslaust, auk yfirlits yfir kennsluefni á þjálfaranámskeiðum KSÍ. Ef þú vilt fá fræðsluefni lánað, hafðu þá samband við skrifstofu KSÍ. Þau gögn sem hér eru birt eru eign KSÍ og eru ætluð knattspyrnuþjálfurum og kennurum á sviði knattspyrnu til upplýsingar. Höfundarréttur er á kennslugögnum námskeiðanna og þarf leyfi fræðslustjóra KSÍ til að nýta þau í kennslu. Um UEFA-B próf - Upplýsingar af undirbúningsfundi Kennslugögn af þjálfaranámskeiðum KSÍ Kennslugögn eru í stöðugri vinnslu og geta breyst á milli námskeiða. Gögnum verður því bætt inn annað slagið og öðrum skipt út. Leiðbeiningar Hvert safn af kennslugögnum er geymt í WinZip skrá.
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||



