|
|
19.12.00 Félagafjöldinn kominn yfir 200Það er ljóst að hinn almenni félagsmaður í KÞÍ kann að meta það sem gert hefur verið að undanförnu í félaginu okkar því nú hafa 201 greitt árgjaldið vegna ársins 2000 og erum við í stjórn KÞÍ ákaflega þakklát fyrir það. Samt má segja að enn eru nokkrir starfandi þjálfarar, sem greitt hafa árgjaldið hingað til, enn eftir að ganga frá félagsgjaldinu sínu fyrir árið 2000 og skorum við á þá alla að gera það sem fyrst og stuðla þannig að enn betra starfi innan félagsins. 18.12.00 Kraftþjálfun knattspyrnumannaLokaritgerð Ómars Jóhannssonar og Gunnars Guðmundssonar á E stigi KSÍ 1999, Kraftþjálfun knattspyrnumanna, könnun á kraftþjálfun íslenskra knattspyrnuliða, má nú finna undir liðnum fróðleikur. Í ritgerðinni er borin saman kraftþjálfun þriggja íslenskra knattspyrnuliða, þ.e. ÍBV, Þróttar Reykjavík og Víkings Reykjavík og að auki ýmis fróðleikur um þetta efni. 18.12.00 Ýmis fróðleikur frá Alla ÖrnólfsUndir liðnum fóðleikur má nú finna ýmsan fróðleik frá Aðalsteini Örnólfssyni knattspyrnuþjálfara hjá Stjörnunni í Garðabæ. 6.12.00 Fréttabréf á leiðinni til félagsmanna4. tbl. Fréttabréfs Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands er að koma úr prentun og berst félagsmönnum væntanlega í kringum 11. desember. Meðal efnis er skýrsla stjórnar KÞÍ fyrir síðasta starfsár, Gunnar Guðmundsson þjálfari sýnir okkur nokkrar skemmtilegar æfingar og svo eru stuttar fréttir. 28.11.00 Áfengi og Tóbak - Andstæðingar afrekaFimmtudaginn 30. nóv. n.k. stendur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fyrir fræðslufundi þar sem fjallað verður um áhrif áfengis og tóbaks á árangur í íþróttum. Fundurinn fer fram í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 3.h. og hefst kl. 20.00 Dagskrá: Kl. 20:00 Setning - Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ Kl. 20:05 Áhrif áfengis á árangur í íþróttum - Valgerður Rúnarsdóttir, læknir Kl. 20:40 Áhrif tóbaks á árangur í íþróttum - Ásgeir Helgason, læknir Kl. 21:15 Viðhorf þjálfarans - Bjarni Jóhannsson, knattspyrnuþjálfari Kl. 21:30 Umræður Fundurinn er sérstaklega ætlaður öllum starfandi þjálfurum innan íþróttahreyfingarinnar og eru forráðamenn hvattir til að koma þessu bréfi áfram til allra þjálfara á þeirra vegum. Forráðamenn íþróttafélaga sem og foreldrar barna og unglinga í íþróttum eru einnig hvattir til að mæta. 27.11.00 Góður hagnaður á árinuÁ aðalfundi KÞÍ kom fram að hagnaður af rekstri félagsins á síðasta ári var rúmlega 500.000 og ljóst að stjórn félagsins hefur heldur betur tekið á fjármálunum. Fram kom á fundinum að unnið er að því að finna eitthvað sem félagar fá með árgjaldinu á næsta ári, en hvað það verður er ekki enn komið á hreint. 19.11.00
|








Myndbandsspólur frá stóru mótunum