Þjálfarastörf
 
 
 
 
 
 
 
 

31.12.07 - Ráðstefna UEFT í Helsinki 2007

Ráðstefnu evrópska knattspyrnuþjálfarafélagsins var haldin í Helsinki 15. - 19. september 2007. Fyrir hönd Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands sóttu Ómar Jóhannsson gjaldkeri KÞÍ og Úlfar Hinriksson ritari KÞÍ ráðstefnuna. Hér fyrir neðan má finna ýmis gögn frá ráðstefnunni.

Finnland, Noregur, Danmörk og Ísland voru öll með efni á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007 sem kallaðist Nordic day.

Norræni dagurinn á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.pdf


Luka Lúkas Kostic þjálfari U17 og U21 unglingalandsliða Íslands flutti fyrirlestur á ráðstefnunni og var einnig með verklega æfingu.

Fyrirlestur Luka Lukas Kostic á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.pdf

Myndbönd frá æfingum Luka Lúkas Kostic á ráðstefnu UEFT í Helsinki
(Vinsamlegast hægrismellið og veljið "Save target as..." til þess að vista myndbandið í tölvunni)
Myndband 1 (18 MB)
Myndband 2 (18 MB)
Myndband 3 (20 MB)
Myndband 4 (33 MB)
Myndband 5 (30 MB)
Myndband 6 (22 MB)
Myndband 7 (29 MB)
Myndband 8 (13 MB)


Andy Roxburgh tæknilegur ráðgjafi hjá UEFA flutti fyrilestur á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.

Fyrirlestur Andy Roxburgh á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.pdf

Paul Gilling fræðslustjóri danska knattspyrnusambandsins flutti fyrirlestur á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.


Fyrirlestur Poul Gilling á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.pdf

Timo Liekoski þjálfari U17 landsliðs Finlands flutti fyrirlestur á ráðstefnu UEFT í Helsinki.

Fyrirlestur Timo Liekoski á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.pdf


Tommy Wilson yfirþjálfari Akademíu Glasgow Rangers og U20 landsliðsþjálfari Skotlands flutti fyrirlestur á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.


Fyrirlestur Tommy Wilson á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.pdf

Oyvind Larsen fræðslustjóri norska knattspyrnusambandsins flutti fyrirlestur á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.


Fyrirlestur Oyvind Larsen á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.pdf

Willi Ruttensteiner fræðslustjóri austuríska knattspyrnusambandsins flutti fyrirlestur á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.

Fyrirlestur Willi Ruttensteiner á ráðstefnu UEFT í Helsinki 2007.pdf.

30.12.07 - Luca Lúkas Kostic hlýtur viðurkenningu Alþjóðahúss

Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Luca Lúkasi Kostic, Hjálmari Sveinssyni, Ævari Kjartanssyni og Eflingu-stéttarfélagi viðurkenningu Alþjóðahúss ,,Vel að verki staðið” fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda á Íslandi við athöfn í Alþjóðahúsinu 30. desember.

Viðurkenningin, sem nú er veitt í fimmta skipti, þjónar þeim tilgangi að vekja athygli á jákvæðu starfi sem unnið er hér á landi í málefnum innflytjenda. Veittar voru viðurkenningar fyrir lofsverða frammistöðu í þremur flokkum; til einstaklings af íslensku bergi brotinn sem hefur lagt sitt af mörkum til innflytjenda á Íslandi sem voru tveir að þessu sinni, til einstaklings af erlendum uppruna sem hefur lagt sitt af mörkum til samfélagsins og til fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka fyrir framlag til málefna innflytjenda og fjölmenningarsamfélagsins.


Luca Lúkas Kostic
Luka Lúkas Kostic er einn þeirra erlendu ríkisborgara sem hafa komið við sögu í íslenskri knattspyrnu og auðgað hana með framlagi sínu. Hann er eini íslenski knattspyrnuþjálfarinn sem leitt hefur landslið í 8-liða úrslitakeppni Evrópu. Knattspyrnusamband Íslands hefur í mörg ár beitt sér fyrir þátttöku í starfi á sínum vegum með það að leiðarljósi að knattspyrna er leikur án fordóma. Það er því vel við hæfi að einn albesti sendiherra knattspyrnunnar hérlendis fái viðurkenningu Alþjóðahússins að þessu sinni.

Sjá nánar á
heimasíðu Alþjóðahússins.

30.12.07 - Þjálfararáðstefna í Þýskalandi

Gunnar Guðmundsson þjálfari mfl. karla hjá HK fór á vegum KÞÍ á þjálfararáðstefnu hjá þýska knattspyrnuþjálfarafélaginu í Nurnberg í Þýskalandi í sumar.

Skýrsla frá ráðstefnu þýska knattspyrnuþjálfarafélagsins í Nurnberg 2007.

30.12.07 - Þjálfararáðstefna UEFT í Prag

Ráðstefna evrópska knattspyrnuþjálfarafélagsins var haldin í Prag 2006.

Skýrsla frá ráðstefnu UEFT í Prag 2006.pdf

28.12.07 - Margrét Lára Viðarsdóttir er Íþróttamaður ársins 2007

Margrét Lára Viðarsdóttir var nú í kvöld útnefnd Íþróttamaður ársins 2007 í hófi sem fram fór í kvöld á Grand Hótel í Reykjavík. Margrét Lára hlaut 496 atkvæði í kjörinu en í öðru sæti var Ólafur Stefánsson handboltamaður með 319 atkvæði og í því þriðja Ragna Ingólfsdóttir badmintonkona með 225 atkvæði.

Margrét Lára átti frábært ár bæði með Val og íslenska landsliðinu á árinu og sló markamet með báðum liðum. Hún sneri til Íslands snemma árs eftir að hafa hætt hjá þýska félaginu Duisburg. Hún ákvað í febrúar að ganga til liðs við Val að nýju og lék með þeim allt tímabilið. Hún lék í heildina alla 16 leiki Vals í Landsbankadeild kvenna í sumar og skoraði í þeim 38 mörk og bætti þar með met frá árinu 2006 sem hún hafði sjálf sett er hún skoraði 34 mörk í 13 leikjum.

Hún skoraði einnig eitt mark í eina bikarleik Vals á tímabilinu auk þess sem hún skoraði átta mörk í sex leikjum Vals í Evrópukeppni kvennaliða. Hún lék alla 9 landsleiki Íslands á árinu og skoraði í þeim átta mörk. Í þriðja leiknum á árinu gegn Portúgal á æfingamóti á Algarve setti hún markamet með íslenska landsliðinu aðeins 20 ára gömul. Hún hefur nú skorað 29 mörk í 35 landsleikjum fyrir Íslands hönd.

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands óskar Margréti Láru til hamingju með útnefninguna.

27.12.07 - Þjálfaraferðin 2008

Norska knattspyrnuþjálfarafélagið endurtekur hinar vel heppnuðu þjálfaraferðir fyrri ára og bíður nú í þjálfaraferð til Englands 31. janúar til 3. febrúar. Íslenskum knattspyrnuþjálfurum gefst kostur á að fara með í ferðina. Sjá auglýsingu hér neðar, allar frekari upplýsingar gefa Sigurður Þórir Þorsteinsson í síma 861-9401 og Kristján Guðmundsson í síma 862-7670.


Smelltu fyrir stærri útgáfu
.

24.12.07 - Gleðileg jól, gott og farsælt komandi knattspyrnu ár

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands sendir öllum knattspyrnuþjálfurum og öðrum velgjörðarmönnum KÞÍ, sínar bestu óskir um gleðileg jól, með ósk um gott og farsælt komandi knattspyrnu ár.

17.12.07 - KSÍ veitti 77 einstaklingum heiðurmerki KSÍ

Áður en knattspyrnufólk ársins var kynnt á mánudagskvöld veitti Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, 77 einstaklingum heiðursmerki KSÍ fyrir frábær störf í þágu knattspyrnunnar á Íslandi. Alls hlutu 53 einstaklingar silfurmerki KSÍ og 24 hlutu gullmerki KSÍ. Sjá má hverjir hlutu heiðursmerki KSÍ að þessu sinni á ksi.is

Heiðursmerki úr gulli:
Heiðursmerki þetta veitist aðeins þeim mönnum, sem unnið hafa knattspyrnuíþróttinni langvarandi og þýðingarmikil störf.

Heiðursmerki úr silfri:
Heiðursmerki þetta veitist þeim sem unnið hafa vel og dyggilega að eflingu knattspyrnuíþróttarinnar í áratug eða lengur.

17.12.07 - Hermann og Margrét Lára knattspyrnufólk ársins 2007

Leikmannaval KSÍ valdi Hermann Hreiðarsson og Margréti Láru Viðarsdóttur knattspyrnufólk ársins árið 2007. Verðlaunin voru afhend í höfðustöðvum KSÍ í kvöld við hátíðlega athöfn. Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin hjá konum og körlum en þetta er í fjórða skiptið sem knattspyrnumaður og knattspyrnukona eru sérstaklega útnefnd af KSÍ.

Þau sem hlutu verðlaun voru:

Knattspyrnumaður ársins 2007 - Hermann Hreiðarsson

Hermann lék sinn 75. landsleik á árinu og er nú orðinn þriðji leikjahæsti A-landsliðsmaður Íslands. Hann lék fimm landsleiki á árinu og var fyrirliði í fjórum þeirra. Hermann gekk í maí til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Portsmouth og hefur leikið mikilvægt hlutverk í leik liðsins sem er í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur. Hann hefur leikið rúmlega 400 deildarleiki á ferlinum og af þeim eru 259 leikir í ensku úrvalsdeildinni og á vafalaust eftir að bæta fleiri leikjum þar í sarpinn. Hermann er svo sannarlega verðugur fulltrúi íslenskrar knattspyrnu.

Knattspyrnukona ársins 2007 - Margrét Lára Viðarsdóttir

Margrét Lára Viðarsdóttir var lykilmaður í liði Íslandsmeistara Vals sem og íslenska kvennalandsliðinu. Hún setti nýtt glæsilegt markamet þegar hún skoraði 38 mörk í Landsbankadeild kvenna og bætti þar með sitt eigið markamet frá árinu áður. Margrét Lára lék í öllum 9 landsleikjum Íslands á árinu og skoraði í þeim 8 mörk, m.a. sigurmarkið í fræknum sigri á Frökkum. Margrét hefur því skorað 29 mörk í 35 landsleikjum fyrir A-landslið kvenna. Margrét Lára er frábær fulltrúi íslenskrar knattspyrnu.

13.12.07 - Val á knattspyrnufólki ársins kunngjört 17. desember

Val á knattspyrnukonu og knattspyrnumanni ársins fyrir árið 2007 verður kunngjört mánudaginn 17. desember. Athöfnin fer fram í höfuðstöðvum KSÍ og hefst kl. 18:00. Viðurkenningar eru veittar fyrir þrjú efstu sætin hjá konum og körlum. Þetta er í fjórða skiptið sem knattspyrnufólk ársins er sérstaklega útnefnt af KSÍ en á síðasta ári voru það Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir sem hlutu nafnbótina.

11.12.07 - Íslensk knattspyrna komin út

Í dag var Íslensk knattspyrna 2007 eftir Víði Sigurðsson kynnt og við það tilefni tók Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, við fyrsta eintakinu úr hendi Helga Jónssonar frá Bókaútgáfunni Tindi. Bókin er að koma út í 27. skiptið og er bókin 224 síður í stóru broti. Eins og áður hefur Víðir safnað að sér allskyns upplýsingum um íslenska knattspyrnu. Ítarleg viðtöl eru við Sigurbjörn Hreiðarsson, Katrínu Jónsdóttur, Rúnar Kristinsson og Ólaf Jóhanesson. Í bókinni er svo að finna öll úrslit í öllum leikjum á vegum KSÍ á árinu 2007, en Bókaútgáfan Tindur og KSÍ hafa samvinnu um birtingu þeirra.

6.12.07 - Grasrótarverðlaun UEFA og KSÍ árið 2007

Í dag voru afhentar viðurkenningar fyrir grasrótarviðburði ársins í knattspyrnu. Það eru KSÍ og UEFA sem veita þessar viðurkenningar árlega og fór afhendingin fram í dag í höfuðstöðvum KSÍ. Það voru þeir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ og Guðlaugur Gunnarsson, starfsmaður mótadeildar KSÍ, sem afhentu viðurkenningarnar í dag.

Viðurkenningarnar í ár fengu eftirtaldir aðilar:

KA fyrir N1 mótið sem er grasrótarviðburður ársins (Most valuable grassroots event). KA menn hafa haldið þetta mót fyrir 5. flokk karla með miklum glæsibrag í 21 ár. Mótið og umfang þess hefur vaxið mikið og á síðasta mót mættu 34 félög með 142 lið.

Íþróttafélagið Nes fékk viðurkenningu fyrir knattspyrnu fatlaðra (Best disabled football event) Nes hélt Íslandsleika fatlaðra í knattspyrnu í Reykjaneshöllinni í apríl við frábærar undirtektir.

Púkamótið á Ísafirði fyrir leikmenn í eldri flokki (Best Veterans Football Event 2006). Þetta í þriðja skiptið sem það er haldið en tilgangur mótsins er að byggja upp og vekja athygli á sjóði sem ætlað er að styrkja ísfirska knattspyrnu.

Félögin fengu við þetta tilefni viðurkenningarskjal frá UEFA og KSÍ, boli, derhúfur og bolta.

5.12.07 - Áhugaverð alþjóðleg þjálfararáðstefna í Danmörku

Áhugaverð alþjóðleg þjálfararáðstefna í Danmörku 5-6. janúar
Þjálfarar frá Íslandi geta skráð sig til 16. desember.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ er einn af fyrirlesurum á stórri alþjóðlegri þjálfararáðstefnu sem fer fram í Kaupmannahöfn 5-6. janúar 2008. Ráðstefnan ber nafnið Copenhagen International Football Congress og er reiknað með að 200-250 þjálfarar víðs vegar að úr heiminum sæki ráðstefnuna.

Erindi Sigurðar Ragnar fjallar um leyndarmálið á bakvið það hvernig Ísland hefur farið að því að búa til svona marga atvinnumenn í knattspyrnu. Þetta efni hefur vakið töluverða athygli erlendis en Sigurður hélt svipaðan fyrirlestur í Svíþjóð í byrjun þessa árs á 200 manna þjálfararáðstefnu í Örebro, Svíþjóð. UEFA hefur einnig fjallað um þetta efni og vitnar og birtir stóran hluta af fyrirlestri Sigurðar Ragnars á heimasíðu sinni.

Hér að neðan eru helstu upplýsingar og dagskrá ráðstefnunnar fem fer fram í Kaupmannahöfn, en þjálfarar frá Íslandi geta skráð sig til 16. desember ef þeir vilja fara á ráðstefnuna.

Heimasíða ráðstefnunnar:
http://www.cifc.eu/cifc/English.html

3.12.07 - 62. ársþing KSÍ - 9. febrúar 2008

62. ársþing Knattspyrnusambands Íslands verður haldið í húsakynnum KSÍ laugardaginn 9. febrúar 2008.

29.11.07 - Breytingar á lögum KÞÍ

Ein tillaga að lagabreytingu var afgreidd á aðalfundi KÞÍ.

6.grein laga KÞÍ er svohljóðandi: Árgjöld félagsmanna skulu ákveðin aðalfundi hverju sinni. Aðeins skuldlausir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Þeir sem ekki hafa greitt árgjöld innan sex mánaða frá innheimtu þess, teljast ekki lengur til félaga í KÞÍ.

6. grein verði : Árgjöld félagsmanna skulu ákveðin aðalfundi hverju sinni. Aðeins skuldlausir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Heiðursviðurkenningarhafar KÞÍ eru undanþegnir greiðslu árgjalds og teljast fullgildir félagar í KÞÍ.

Lagabreytingartillagan var samþykkt.

29.11.07 - Fundargerð aðalfundar KÞÍ

Formaður stakk upp á Bjarni Jóhannsson sem fundarstjóra og Úlfari Hinrikssyni til sem fundarritara, var það samþykkt.

Dagskrá

1. Skýrsla stjórnar: Sigurðuir Þórir formaður KÞÍ (sjá nánar skýrslu stjórnar)

2. Reikningar félagsins: Ómar gjaldkeri KÞÍ fer yfir (sjá nánar skýrslu stjórnar)

3. Umræður um skýrslu stjórnar eða reikninga.
Engar athugasemdir og skoðast því reikningar og skýrsla stjórnar samþykkt.

Bjarni Stefán Konráðsson spyr í hverju styrkur Landsbankans liggi? Gjaldkeri svarar því til að Landsbankinn kosti gjafir og útgáfu reikninga, metið á 700 þúsund.krónur á árinu.


4. Lagabreytingar
Tillaga að lagabreytingu. 6.grein. Er svohljóðandi:

Árgjöld félagsmanna skulu ákveðin aðalfundi hverju sinni. Aðeins skuldlausir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Þeir sem ekki hafa greitt árgjöld innan sex mánaða frá innheimtu þess, teljast ekki lengur til félaga í KÞÍ.

6. verði :
Árgjöld félagsmanna skulu ákveðin aðalfundi hverju sinni. Aðeins skuldlausir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Heiðursviðurkenningarhafar KÞÍ eru undanþegnir greiðslu árgjalds og teljast fullgildir félagar í KÞÍ.

Lagabreytingartillaga samþykkt.


5. Kosningar
a) Kosning meðstjórnenda til tveggja ára. Tillaga um meðstjórnendur: Úlfar Hinriksson og Jóhann Gunnarsson. Samþykkt.

b.) Kosning varamanna til eins árs. Tillaga um varamenn: Arnar Bill Gunnarsson og Kristján Guðmundsson. Samþykkt.

c.) Skoðunarmenn reikninga Halldór Örn Þorsteinsson og Birkir Sveinsson til næsta árs. Samþykkt

d.) Gjaldkeri leggur til að árgjald verði óbreytt. 3000 krónur. Samþykkt

6. Önnur mál
Halldór Halldórsson spyr hvernig nýta eigi inneign félagsins? Formaður svarar því til að það sé alls ekki stefna félagsins að safna peningum og þeir verði notaðir í starfið.

Bjarni Stefán Konráðsson. Lýsir yfir ánægju sinni yfir góðri fjárhagstöðu félagsins. Bendir á að ekki hafi allir séð auglýsingar um aðalfundinn. Bjarni Stefán hvetur félagið til að gera kröfur. Í dag eru breyttir tímar og með hverju árinu sé erfiðara að fá þjálfara til starfa og það verði félagið að nýta það í okkar starf. Þjálfurum með mentunn fjölgar en ekki fer alltaf saman magn og gæði. Finnst Bjarna Stefáni sem nokkuð vanti uppá hjá fagmennksu hjá þjálfururm sem eru að útskrifast í dag. Hefur hann ákveðnar áhyggjur af þessari þróun.

Síðasta atriðið sem Bjarni Stefán vill nefna er hlutur sem ekki allir vita en KSÍ greiðir ákveðið tímakaup á sínum þjálfaranámskeiðum. Í dag eru greiddar 4500 kr fyrir 40 mín kennslu. Segir Bjarni að það séu borguð lægri laun fyrir þau námskeið sem haldin eru út á landi. Leggur hann til við stjórn að passa upp á að þjálfarar séu ekki að undirbjóða hvern annan.

Það að safna peningum og rífa félagið upp úr deyfð og doða var mikið verk á sínum tíma og erfitt reyndist að ná félaginu upp fyrir núllið. Það verður að eiga inneign til mögru áranna.

Formaður, Sigurður Þ. Þorsteinsson segir að ákveðið hafi verið að auglýsa aðalfundinn á fjórum netmiðlum; ksi.is, isisport.is, fotbolti.net og gras.is ásamt því að senda tölvupóst á meðlimi sem og að fá KSÍ til að senda út á sinn þjálfaralista.
Hvað varðar magn framyfir gæði að þá situr formaður í fræðslunefnd KSÍ og það þarf að fara yfir málið. Sama er með hvernig við viljum sjá okkur sem félag.

Halldór Halldórsson spyr um stéttarfélögin hvort KÞÍ eigi heima eða geti farið inn í eitthvað stéttarfélag. Formaður segir að stjórn KÞÍ hafi ekki tekið ákvörðun með stéttarfélagshlutverk KÞÍ. Málið muni áfram verða rætt innan félagsins.

Kristín spyr hvernig stjórnarmenn kynna félagið? Formaður svarar því til að stjórnarmenn kynni félagið á öllum þjálfaranámskeiðum KSÍ.

Bjarni Jóhannsson tekur undir orð Bjarna Stefáns varðandi laun þjálfara/kennara hjá KSÍ. Hann telur að við séum langt á eftir í launum hjá landsliðsþjálfurum sem og hjá kennurum á námskeiðum sambandsins. Bjarni Stefán bætir því við aö það sé staðreynd að aðrir kennarar en fótboltaþjálfarar á þjálfaranámskeiðum KSÍ séu á hærri taxta.

Halldór Halldórsson spyr um hvort það séu einhver virk þjálfarasambönd í öðrum íþróttagreinum? Formaður svarar að ekki sé vitað um neitt virkt félag. Halldór spyr hvort félagsmönnum hafi fækkað? Gjaldkeri svarar því neitandi og segir tölurnar sveiflast aðeins út af uppgjörsárinu. .

Fundarstjóri biður formann um að slíta aðalfundi.

Formaður slítur fundi


Fundarritari
Úlfar Hinriksson

29.11.07 - Skýrsla stjórnar Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands starfsárið 2006 – 2007

Á síðasta aðalfundi sem haldinn var 18. nóvember í Smáranum, félagsheimili Breiðabliks í Kópavogi, var kosin stjórn sem skipti með sér verkum á fyrsta stjórnarfundinum á starfsárinu. Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður, Þórir Bergsson varaformaður, Úlfar Hinriksson ritari, Ómar Jóhannsson gjaldkeri og Jóhann Gunnarsson spjaldskrárritari. Í varastjórn voru kosnir Arnar Bill og Kristján Guðmundsson. Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnir þeir Birkir Sveinsson og Halldór Örn Þorsteinsson.

Á starfsárinu voru haldnir átta fundir auk fjölmargra funda þar sem hluti stjórnar hittist og fór yfir ýmis mál.
Einnig hafa stjórnarmenn verið duglegir við að nota sér nútímatækni og hafa samskipti sín á milli með tölvupósti.
Markmiðið eins og áður hjá stjórninni var að fundartíminn væri ekki lengri en 90 mínútur.
Allar fundargerðirnar er hægt að sjá á heimasíðu KÞÍ undir liðnum KÞÍ.

Fjárhagur félagsins stendur mjög vel en alltaf má gera betur til að efla félagið enn frekar. Í ár hafa rúmlega 360 greitt árgjaldið sem er met hjá félaginu. Í fyrra greiddu um 330 þjálfarar sem var met þá. Fjölgunin hefur verið mjög mikil undanfarin ár, úr 90 í rúmlega 360 á níu árum. Til samanburðar má nefna að í Svíþjóð greiða um 700 þjálfarar árgjaldið. Markmið stjórnar KÞÍ er að árið 2010, þegar félagið verður 40 ára verði um 400 þjálfarar sem greiði árgjald KÞÍ.
Stjórn KÞÍ hefur verið ötul við að fara á þjálfaranámskeið KSÍ og kynna félagið til að fá inn nýja félagsmenn. Einnig höfum við fylgst vel með þjálfararáðningum hjá félögunum og höfum verið í góðu sambandi við landshlutatengiliðina sem hafa reynst okkur mjög vel. Þeir hafa m.a. dreift til félagsmanna á sínu svæði því sem við höfum látið fylgja með árgjaldinu hverju sinni. Í ár fylgdi árgjaldinu púlsklukka og göngumælir sem er til afhendingar á skrifstofu KSÍ fyrir félagsmenn á höfuðborgarsvæðinu.
Við höfum átt mjög gott samstarf við KSÍ undanfarin ár og er það mjög mikilvægt fyrir okkar félag. Knattspyrnusamband Íslands tók að sér að borga árgjald evrópska knattspyrnuþjálfarafélagsins, 1200 evrur sem eru rúmlega 100.000 krónur.

Aðalstyrktaraðilar KÞÍ eru : LANDSBANKINN, TOYOTA og LYRA.
Þess má geta að Landsbankinn og Toyota eru nýir styrktaraðilar og bjóðum við þá velkomna í okkar hóp okkar helstu styrktaraðila, um leið og við þökkum LYRU fyrir langt og farsælt samstarf.
Það er ljóst að fjármagn kemur ekki að sjálfu sér inn í félagið og því er ljóst að eins og á öllum öðrum stöðum hefur þurft að hafa töluvert fyrir því að fá inn nýja styrktaraðila og halda áfram með þá sem hafa styrkt félagið.
Allt er þetta gert til að við höfum betri möguleika á að styrkja félagið okkar enn frekar.

Munntóbak.

KÞÍ er í samstarfi við Lýðheilsustöð og sendi frá sér eftirfarandi ályktun :
Stjórn KÞÍ skorar á knattspyrnuþjálfara þessa lands að sporna gegn notkun á snusi. Ósiður þessi er innfluttur og á ekki heima í knattspyrnuflóru Íslands. Við skorum á þjálfara að vera til fyrirmyndar í þessum efnum og nota ekki snusið og sjá til þess að fyrirmyndir í meistaraflokkum félaganna sem og landsliðsfólk landsliða okkar noti ekki þennan sóða sem snusið er.

Fyrir stuttu var opnaður nýr vefur sem Lýðheilsustöð lét útbúa í samstarfi við stýrihóp um munntóbaksnotkun . Á vefnum er fjallað um um munntóbak, ánetjun þess og áhrif, auk þess sem vefleikur er á vefnum. Jafnframt eru gefnar leiðbeiningar um hvernig vænlegast sé að hætta notkuninni. Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ opnaði vefinn formlega og hélt stutt ávarp. Einnig flutti Þórólfur Þórlindsson forstjóri Lýðheilsustöðvar ávarp. Viðar Jensson verkefnastjóri tóbaksvarna fór yfir aðdraganda munntóbaksverkefnisins sem kynnt var á fundinum.
Þess má til gamans geta að Sigurður, formaður KÞÍ fór í viðtal í Ríkisútvarpinu í sumar með Viðari um málið eftir að ályktun okkar kom fram á heimasíðu okkar, KSÍ, fótbolti.net og gras.is

Slóð inn á fræðsluefni og vefleikinn er :
www.lydheilsustod.is/munntobak/

Helstu viðburðir á árinu :

KSÍ A þjálfaragráða er hæsta þjálfaragráða sem kennd er á Íslandi.
Laugardaginn 2. júní s.l. útskrifuðust 58 þjálfarar meðs KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu og var útskriftin haldin í höfuðstöðvum KSÍ. Að útskrift lokinni var þjálfarahópnum boðið á landsleik Íslands og Liechtenstein á Laugardalsvelli. Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður KÞÍ hélt stutta ræðu við útskriftina. Um kvöldið fóru margir þjálfarar á veitingastaðinn Kaffi Reykjavík.
Samtals eru því 80 knattspyrnuþjálfarar á Íslandi með KSÍ A þjálfaragráðu (22 höfðu áður útskrifast).

Matarfundur.

Ráðgert var að halda matarfund á Kaffi Reykjavík 20. apríl en það þurfti að fresta honum vegna ónógrar þátttöku. Sama var uppi á teningnum á Akureyri en það stóð til að halda fund þar 28. apríl. Við í stjórninni höfum rætt um það hvers vegna það skráðu sig ekki fleiri á þessa viðburði. Hugsanlegt er að þeir séu of nálægt lokaundirbúningi liðanna og væri rétt að kanna hvort ekki verði meiri áhugi ef þetta er gert fyrr á árinu.

Ráðstefna Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands og Knattspyrnusambands Íslands
Ráðstefna í tengslum við úrslitaleik VISA-bikars karla.
Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) í samvinnu við Knattspyrnusamband Íslands hélt sína árlegu ráðstefnu í tengslum við VISA-bíkarúrslitaleik karla þann 6. október síðasliðinn. Ráðstefnan fór fram í nýjum húsakynnum KSÍ, glæsilegu fræðslusetri og hófst dagskráin kl. 09.00 Ráðstefnan kostaði 3000 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ en annars 6000 krónur.

Dagskrá ráðstefnunnar :

(Ráðstefnan haldin í samvinnu við KSÍ):

Laugardagur, 6. október 2007, haldið í fræðslusetri KSÍ, Laugardal

09.00 Setning - Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður KÞÍ
09.10 Minning um Ásgeir Elíasson (myndbrot)
09.20 Samningamál þjálfara - Brynar Níelsson lögmaður
09.40 UEFA Pro námskeið - Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ
10.10 HLÉ
10.20 Hlutverk þjálfarans - Willum Þór Þórsson þjálfari Íslandsmeistara Vals
10.50 Af hverju komst U-17 karla í úrslitakeppni EM? - Luka Kostic landsliðsþjálfari U-17
11.20 HLÉ
11.30 Knattspyrnuakademían á Suðurlandi - Guðjón Þorvarðarson
12.00 Tölfræði liðanna - Ólafur Kristjánsson þjálfari mfl. karla Breiðablik
12.15 Hvernig leggja þeir upp leikinn? Þjálfarar liðanna sem mætast í Visa bikarúrslitaleiknum
Ólafur Jóhannesson - FH
Ásmundur Arnarsson - Fjölnir
12:45 Þjálfarar ársins í mfl. karla og kvenna
Viðurkenningar fyrir vel unnin störf í yngri flokka þjálfun
13:00 Matur
14:00 Visabikarúrslitaleikur karla FH-Fjölnir á Laugardalsvelli

Ráðstefnustjóri: Njáll Eiðsson


Vel heppnuð bikarúrslitaráðstefna KÞÍ

Sjötta október hélt Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands sína árlegu ráðstefnu í tengslum við bikarúrslitaleik karla. Ráðstefnan var vel sótt af þjálfurum og þótti velheppnuð í alla staði.

Eftir setningu ráðstefnunnar var sýnt myndbrot til að heiðra minningu Ásgeirs Elíassonar. Lögmaðurinn Brynjar Níelsson fór yfir samningagerð. Sagði hann að það væru alltaf sömu vandamálin að koma upp. Það er mikill munur lögum samkvæmt á launþegasamning og verktakasamning. Atriði eins og veikindaréttur, orlofsréttur, slysatrygging og atvinnubótaréttur eru lögbundin í launþegasamning á meðan verktaki þarf að semja sérstaklega um þessi atriði. Verktaki þarf auk þess að standa sjálfur skil á skatti, tryggingagjaldi og sjá um lífeyrissjóðsgreiðslur. Fræðslustjóri KSÍ Sigurður Ragnar Eyjólfsson fór yfir forsögu þess að hann hóf UEFA Pro Licence nám hjá enska knattspyrnusambandinu. Ásamt því að fara ítarlega yfir skipulag, kennsluefni og nokkur verkefni námsins. Í lok fyrirlestrarins fór Sigurður yfir hugsanlegar leiðir íslenskra þjálfara í framtíðinni til að taka UEFA Pro Licence. Willum Þór Þórsson þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara Vals í meistaraflokki karla ræddi um hlutverk þjálfarans, mikilvægi námsvilja og þess að vera alltaf að læra. Lúka Kostic fór yfir forvalsferlið fyrir U17 drengja og sagði frá liðinu sem komst í úrslitakeppni Evrópumóts U17 landsliða drengja sem fór fram í Belgíu í maí síðastliðnum. Guðjón Þorvarðarson kynnti knattspyrnuakademíuna á Suðurlandi og starf sitt fyrir knattspyrnudeild Selfoss. Á Selfossi hefur átt sér gríðarleg uppbygging á síðustu misserum. Ólafur Kristjánsson þjálfari meistaraflokks Breiðabliks bar saman liðin í úrslitaleik Visa bikarsins ásamt því að Heimir Guðjónsson og Ásmundur Arnarsson komu og tilkynntu byrjunarliðin og fóru yfir helstu áherslur í sókn og vörn fyrir leikinn. Það mættu um 60 manns á þessa bikarúrslitaráðsefnu bæði frá KÞÍ og af 4. stigi KSÍ.

Á bikarráðstefnunni útnefndi félagið þjálfara ársins.

Willum Þór Þórsson og Elísabet Gunnarsdóttir þjálfarar Vals voru útnefndir þjálfarar ársins í Landsbankadeildum karla og kvenna fyrir árið 2007.

Viðurkenning fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka.

Jón Ólafur Daníelsson og Kári Jónasson hlutu viðurkenningu fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka á bikarúrslitaráðstefnu KÞÍ. Báðir hafa þeir lagt mikinn metnað í þjálfunina og verið knattspyrnuþjálfarastéttinni til sóma við störf sín..

Þátttakendum fækkar á knattspyrnuþjálfaranámskeiðum.
Það er töluverð fækkun hjá KSÍ þrátt fyrir að haldin séu jafnmörg námskeið og í fyrra.
Helstu ástæður fyrir fækkuninni:
Mettun á KSÍ II og KSÍ VI (ónóg þátttaka, reynt var að halda þessi námskeið)
Enginn erlendur fyrirlesari hefur komið til okkar á þessu ári (76 manns fóru á Jens Bangsbo í fyrra)
KSÍ VII námskeiðið var tímafrekasta og langviðamesta námskeiðið sem KSÍ hefur haldið seinustu árin. Námskeiðið stóð yfir í nokkra mánuði og þurfti mikið utanumhald í kringum það (enda 58 manns sem útskrifuðust þar).
Ánægjuleg er þó sú þróun að félög á landsbyggðinni sýna aukinn áhuga fyrir því að halda knattspyrnuþjálfaranámskeið í sínum heimabyggðum.

Þátttaka á þjálfaranámskeiðum KSÍ 1996-2007


2007 2006 2005 2004 2003 2002 2001 2000 1999 1998 1997 1996
KSÍ I (A-stig) 98 88 96 73 115 62 45 28 37 40 42
KSÍ II (B-stig) 46 65 77 88 61 39 29 43 29 24 34
KSÍ III (C-stig) 43 36 37 66 41 17 16 23 14 25
KSÍ IV 33 32 39 61 28 29
KSÍ V 19 36 31 40
KSÍ VI 25 27
KSÍ VII 58 2 20
D-stig
Fyrri hluti D-stigs 27 41
Síðari hluti D-stigs 19 39
E-stig 25
Sérnámskeið E-stigs 33
Barnaþjálf. 21
Unglingaþjálf. 18
Andy Roxburgh 78
Per Rud 25
Simon Smith 56
Jens Bangsbo 76
Frans Hoek 65 56
Ráðstefna KSÍ/ÍSÍ 35 58
Alls 297 393 335 411 368 172 109 98 23 130 218 175


2000 4 námskeið
2001 4 námskeið
2002 8 námskeið
2003 10 námskeið
2004 14 námskeið (þar af 1 í viku erlendis)
2005 11 námskeið
2006 11 námskeið (þar af 1 í viku erlendis)
2007 11 námskeið

UEFA B próf 2004: 121
UEFA B próf 2005: 80
UEFA B próf 2006: 36
UEFA B próf 2007: 35
Alls 272 þjálfarar með KSÍ B gráðu


UEFA A próf 2006: 22 þjálfarar
UEFA A próf 2007: 58 þjálfarar
80 þjálfarar með KSÍ A gráðu

Aðrar ráðstefnur :
Aðrar ráðstefnur :

Gunnar Guðmundsson þjálfari m.fl. karla hjá HK fór í boði KÞÍ (Uppihald og námskeiðskostnaður) á ráðstefnu þýska Knattspyrnuþjálfarafélagsins sem haldið var í Nurnberg 22. – 25. júlí s.l. Gunnar mun skila skýrslu frá ráðstefnunni.

Ómar Jóhannsson gjaldkeri KÞÍ og Úlfar Hinriksson ritari KÞÍ fóru á árlega ráðstefnu evrópska knattspyrnuþjálfarafélagsins sem haldin var í Helsinki 15. – 19. september s.l. Meðal fyrirlesara voru Graig Brown (Derby County), Tommy Wilson (Glasgow Rangers) og Roy Hodgson landsliðsþjálfari karlaliðs Finna. Þess má einnig geta að Luca Lúkas Kostic hélt fyrilestur og sýndi æfingar (Klára færi) á sérstökum Norðurlandadegi ráðstefnunnar. Þeir félagar munu skila skýrslu frá ráðstefnunni.

Ungmennafélag Selfoss og Knattspyrnuakademía Íslands á Suðurlandi stóðu að knattspyrnuþjálfararáðstefnu á Selfossi 18. – 20. maí s.l. Bæði var bókleg og verkleg kennsla. Ráðstefnan var fámenn en góðmenn.

Úr fundargerðum :

Sigurður Þórir, formaður flutti ávarp á ársþingi KSÍ og þakkaði meðal annars Eggerti Magnússyni fráfarandi formanni KSÍ fyrir góða samvinnu í gegnum tíðina.

Formaður og varaformaður áttu góðan fund með nýkjörnum formanni KSÍ, Geir Þorsteinssyni og nýráðnum framkvæmdastjóra, Þóri Hákonarsyni um samvinnu og samskipti KÞÍ og KSÍ.
Síðar á starfsárinu funduðu formaður og varaformaður með framkvæmdastjóra KSÍ um frekari mál tengdum KÞÍ og KSÍ.

Að lokum

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands hefur aldrei verið öflugra félag. Staðan er nú þannig að við þurfum að fara í ákveðna stefnumótunarvinnu, ákveða hvernig félag við viljum og ætlum að vera eins og t.d. norska þjálfarfélagið. Hvar og hvernig viljum við sjá okkur á næstu árum, árið 2010 á 40 ára afmæli félagsins. Í lögum félagsins kemur fram að einn aðaltilgangur þess er að sjá til þess að menntun knattpyrnuþjálfara landsins sé góð. KSÍ hefur staðið sig mjög vel í því undanfarin ár en allir þurfa sitt aðhald og þar komum við sterk inn. Þegar við í stjórn KÞÍ förum á námskeið KSÍ og kynnum félagið og óskum eftir spurningum eða umræðum um félagið er ávallt spurt um kjaramál. Við reynum að svara því eins vel og við getum en segjum jafnframt að við erum ekki stéttarfélag.

Við fáum afhenda skrifstofu í höfuðstöðvum KSÍ (gömlu skrifstofurnar) og er það von okkar að við getum gefið okkur meiri tíma í að hlúa að félaginu en eins og allir vita vinna allir stjórnarmenn og landshlutatengiliðir í sjálfboðavinnu.

F.h. stjórnar KÞÍ
Sigurður Þórir Þorsteinsson, formaður.

29.11.07 - Sama stjórn áfram

Jóhann Gunnarsson og Úlfar Hinriksson voru kosnir í aðalstjórn KÞÍ til tveggja ára og Kristján Guðmundsson og Arnar Bill Gunnarsson í varastjórn til eins árs.

29.11.07 - Fámennur aðalfundur

Aðalfundur KÞÍ var haldinn 29. nóvember s.l. í Fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli. Fundurinn var fámennur en umræður voru líflegar, um fimmtán félagsmenn mættu.

29.11.07 - Halldór og Birkir áfram skoðunarmenn

Þeir félagar af skrifstofu KSÍ, Halldór Örn Þorsteinsson og Birkir Sveinsson voru endurkjörnir sem skoðunarmenn reikninga KÞÍ.

28.11.07 - Nýr starfsmaður í fræðslumál hjá KSÍ

Knattspyrnusamband Íslands hefur ráðið Dag Svein Dagbjartsson sem starfsmann í fræðslumál. Dagur hefur lokið B.S. gráðu í íþróttafræðum frá KHÍ Laugarvatni og á að baki 12 landsleiki fyrir U-17 ára landslið Íslands. Dagur Sveinn hefur að auki starfað sem íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu og á DV. Hann mun hefja störf fyrir KSÍ þann 1.janúar 2008. Dagur Sveinn mun verða Sigurði Ragnari Eyjólfssyni fræðslustjóra KSÍ til aðstoðar og mun fræðslustarf KSÍ eflast enn frekar fyrir vikið. Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands býður Dag Svein velkominn til starfa og væntir þess að eiga gott samstarf við hann í framtíðinni.

28.11.07 - Þjálfaramenntun að aukast á landsbyggðinni

KSÍ hefur haldið mörg þjálfaranámskeið á utan höfuðborgarsvæðisins undanfarið og fleiri námskeið eru þar fyrirhuguð. Það er ánægjulegt að félög víðs vegar að af landinu sýna enn aukin áhuga á því að halda þjálfaranámskeið og leggja ennþá meiri áherslu á góða þjálfaramenntun.

Námskeiðin úti á landi hafa eðlilega verið fámennari en námskeiðin á höfuðborgarsvæðinu en engu að síður eru þau gríðarlega mikilvæg til að styðja við uppbyggingu knattspyrnunnar á landsvísu. KSÍ mun reyna eftir fremsta megni að fara með þjálfaranámskeiðin út á landsbyggðina til að efla enn frekar menntun þjálfara þar og ljóst er að KSÍ mun ná betur til fjöldans með því að halda námskeiðin nær heimabyggð þjálfaranna.

KSÍ hefur haldið eftirfarandi þjálfaranámskeið á landsbyggðinni undanfarið:
KSÍ I á Akureyri 19-21. október, 14 þjálfarar luku námskeiðinu.
KSÍ I á Ísafirði 9-11. nóvember, 9 þjálfarar luku námskeiðinu.
KSÍ I á Reyðarfirði, 16-18. nóvember, 18 þjálfarar luku námskeiðinu.
KSÍ II á Akureyri, 19 þjálfarar luku námskeiðinu.

Að auki voru þjálfarar sem luku við KSÍ VII frá Norðurlandi og Vestmannaeyjum núna í ár og hafa því lokið KSÍ A gráðu. Þau námskeið fóru einnig fram í þeirra heimabyggð.

Framundan eru eftirfarandi þjálfaranámskeið á landsbyggðinni:
KSÍ II á Reyðarfirði, 18-20. janúar 2008
KSÍ III á Akureyri, 25-27. janúar 2008

Nánari upplýsingar um þjálfaramenntun KSÍ veitir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri KSÍ (
siggi@ksi.is).

13.11.07 - Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands

Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands verður haldinn í fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 29. nóvember n.k. klukkan 20:00.

Dagskrá:
Fundarsetning
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar
Reikningar félagsins
Lagabreytingar
Kosning formanns, meðstjórnenda og varamanna skv. ákvæði 7. gr. laga
Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
Ákvörðun um árgjald skv. 6. gr. laga
Önnur mál

Stjórn KÞÍ hvetur félagsmenn sína til að mæta.

31.10.07 - Púlsklukkurnar tilbúnar til afhendingar á skrifstofu KSÍ

Púlsklukkan sem fylgir félagsgjaldinu í ár eru nú tilbúin til afhendingar til félagsmanna sem greitt hafa félagsgjaldið í ár, á skrifstofu KSÍ í Laugardal. Félagsmenn á höfuðborgarsvæðinu þurfa að sækja sína púlsklukku á skrifstofu KSÍ, vegna mikils kostnaðar við að senda klukkurnar með pósti. Hvetjum við félagsmenn til að sækja sína klukku á skrifstofu KSÍ við fyrsta tækifæri. Púlsklukkur fyrir félagsmenn á landsbyggðinni verða sendar við fyrsta tækifæri á tengiliði KÞÍ á stæstu þéttbýlisstöðunum og geta félagsmenn sótt klukkurnar til þeirra eða að þeim verður komið heim til félagsmanna. Allar nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á netfangið kthi@isl.is

29.10.07 - Ólafur Jóhannesson ráðinn þjálfari A-landsliðs karla

Ólafur Jóhannesson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari A-landsliðs karla og tekur hann við af Eyjólfi Sverrissyni. Samningur Ólafs er til tveggja ára eða til 31. desember 2009. Fyrsti leikur Ólafs verður 21. nóvember nk. þegar að Íslendingar sækja Dani heim á Parken.

Ólafur Jóhannesson er fæddur 30. júní 1957 og hefur gríðarlega mikla reynslu sem þjálfari og leikmaður í knattspyrnu. Hann lék með FH, Haukum og Val en með síðastnefnda félaginu varð Ólafur Íslandsmeistari árið 1987. Einnig lék hann með Einherja frá Vopnafirði en þar hófst einmitt þjálfaraferill hans fyrir réttum tuttugu og sex árum þegar hann þjálfaði liðið í 3. deildinni.

Ólafur hefur þjálfað víða og aflað sér mikillar reynslu á þeim vettvangi. Hann hefur lokið KSÍ A þjálfaragráðu (UEFA A) en það er hæsta gráða sem hægt er að taka hér á landi í knattspyrnuþjálfun.

Hann hefur þjálfað hjá Þrótti Reykjavík, Haukum, Selfossi og Skallagrími en síðastnefnda félaginu stýrði Ólafur upp í efstu deild árið 1996 og er það í eina skiptið til þessa er Skallagrímur hefur leikið í efstu deild.

Haustið 2002 var Ólafur Jóhannesson ráðinn þjálfari hjá FH en það var í þriðja skiptið er hann þjálfaði hjá félaginu. Árangur Ólafs með FH hefur verið einstaklega góður. FH varð í öðru sæti Landsbankadeildarinnar árið 2003 en árið eftir varð FH Íslandsmeistari i fyrsta skiptið í sögu félagsins. Hafnfirðingar endurtóku svo leikinn, undir stjórn Ólafs, 2005 og 2006. Þá stjórnaði Ólafur FH til sigurs í VISA-bikarkeppninni í fyrsta skiptið árið 2007.

þess má til gamans geta að Ólafur hefur fimm sinnum verið útnefndur þjálfari ársins hjá Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands. Stjórn KÞÍ óskar Ólafi velfarnaðar í starfi.

27.10.07 - Nýr vefur um munntóbak

Fyrir stuttu var opnaður nýr vefur sem Lýðheilsustöð hefur látið útbúa í samstarfi við stýrihóp um munntóbaksnotkun. Á vefnum er fjallað um munntóbak, ánetjun þess og áhrif auk þess sem vefleikur er á vefnum. Jafnframt eru gefnar leiðbeiningar um hvernig vænlegast sé að hætta notkuninni. Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ opnaði vefinn formlega og hélt stutt ávarp. Einnig flutti Þórólfur Þórlindsson forstjóri Lýðheilsustöðvar ávarp. Viðar Jensson verkefnastjóri tóbaksvarna fór yfir aðdraganda munntóbaksverkefnisins sem kynnt var á fundinum.

Slóð inn á fræðsluefni og vefleikinn er:
www.lydheilsustod.is/munntobak/

20.10.07 - Willum Þór og Elísabet útnefnd þjálfarar ársins í lokahófi knattspyrnufólks

Willum Þór Þórsson og Elísabet Gunnarsdóttir voru útnefnd þjálfarar ársins 2007, kjörinu var lýst í lokahófi knattspyrnufólks sem haldið var á Brodway í gær. Willum Þór og Elísabet eru sem kunnugt er þjálfarar Íslandsmeistaraliða Vals í karla- og kvennaflokki. Eins og sjá má hér neðar voru Willum Þór og Elísabet einnig útnefnd þjálfarar ársins í efstu deild karla og kvenna hjá KÞÍ á bikarráðstefnu KÞÍ fyrir stuttu.

10.10.07 - Myndbrot til að heiðra minningu Ásgeirs Elíassonar

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands hélt sína árlegu ráðstefnu í tengslum við bikarúrslitaleik karla 6. október. Ráðstefnan var vel sótt af þjálfurum og þótti velheppnuð í alla staði. Eftir setningu ráðstefnunnar var sýnt myndbrot til að heiðra minningu Ásgeirs Elíassonar knattspyrnuþjálfara.

6.10.07 - Willum Þór og Elísabet þjálfarar ársins


Á bikarráðstefnu knattspyrnuþjálfarafélags Íslands sem haldin var síðast liðna helgi í samvinnu við KSÍ útnefndi félagið þjálfara ársins. Willum Þór Þórsson og Elísabet Gunnarsdóttir þjálfarar Vals voru útnefndir þjálfarar ársins í Landsbankadeildum karla og kvenna fyrir árið 2007.

Willum Þór Þórsson
Willum Þór hóf feril sinn sem þjálfari í Mfl. hjá Þrótti Reykjavík árið 1997. Hann þjálfaði lið Þróttar í 3 ár og vann m.a. Íslandmeistaratitil í fyrstu deild á sínu fyrsta ári með liðið og auk þess Íslandsmeistaratitil innahúss árið 1998. Hann þreytti frumraun sína sem þjálfari í efstu árið 1998. Frá Þrótti lá leiðin í Hafnarfjörðin til Hauka sem þá voru í þriðju deild. Lið Hauka þjálfaði Willum Þór í tvö ár og varð liðið Íslandsmeistari þriðju deildar árið 2000 og Íslandsmeistari annarar deildar árið 2001.
Árin 2002 – 2004 var Willum Þór þjálfari KR, þar sem rætur hans í knattspyrnu liggja. Willum hóf að iðka knattspyrnu með KR ungur að árum og á að baki langan feril sem leikmaður. Lengst af með KR en auk þess lék hann með Breiðabliki, Þrótti Reykjavík og Haukum.
Lið KR varð Íslandsmeistari undir stjórn Willums árin 2002 og 2003 auk þess að vinna Meistarar Meistaranna árið 2003 og að vinna Reykjavíkurmeistaratitil árið 2004.
Willum Þór tók við liði Vals fyrir keppnistímabilið 2005 eftir að liðið hafði unnið sig upp í efstu deild að nýju árið á undan. Á sínu fyrsta ári með liðið varð liðið Reykjavíkurmeistari auk þess að vinna sigur Bikarkeppninni. Þá vann liðið Meistarar meistaranna árið 2006, varð Íslandsmeistari innanhúss (Futzal) árið 2007 og um síðustu helgi hampaði Willum Þór ásamt liði sínu Íslandsmeistaratitli árið 2007.
Á þessari upptalningu má sjá að ferill Willums Þórs einkar glæsilegur. Íslandsmeistari í öllum deildum og með öllum liðum sem hann hefur þjálfað er einsdæmi í íslenskri þjálfarasögu.
Willum Þór hefur UEFA- A gráðu í þjálfaramenntun. Hann lauk viðskiptafræðiprófi frá Háskóla Íslands og Cand Merc í rekstrarhagfræði frá viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og starfar sem kennari í Háskólanum í Reykjavík.

Elísabet Gunnarsdóttir
Elísabet leiddi Valsstúlkur til sigurs í Íslandsmótinu í þriðja sinn á fjórum síðustu árum. Hún er velmenntuð með UEFA A þjálfaragráðu og íþróttakennarapróf.
Elísabet hóf þjálfarferilinn hjá Val þar sem að hún þjálfaði yngri flokka félagsins í 9 ár með frábærum árangri áður en hún tók meistaraflokk kvenna ÍBV í eitt tímabil. Frá Vestmannaeyjum færði hún sig til Breiðabliks og gerði 2.flokk kvenna að Íslandsmeisturum.
Árið 2004 snéri hún tilbaka til Vals og tók við meistaraflokki kvenna og á 4 árum eru 3 Íslandsmeistaratitlar, bikarmeistaratitill og frábært gengi í Evrópukeppni meistaraliða kvenna.

6.10.07 - Vel heppnuð bikarúrslitaráðstefna KÞÍ


Um helgina hélt Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands sína árlegu ráðstefnu í tengslum við bikarúrslitaleik karla. Ráðstefnan var vel sótt af þjálfurum og þótti velheppnuð í alla staði.
Eftir setningu ráðstefnunnar var sýnt myndbrot til að heiðra minningu Ásgeirs Elíassonar. Lögmaðurinn Brynjar Níelsson fór yfir samningagerð. Sagði hann að það væru alltaf sömu vandamálin að koma upp. Það er mikill munur lögum samkvæmt á launþegasamning og verktakasamning. Atriði eins og veikindaréttur, orlofsréttur, slysatrygging og atvinnubótaréttur eru lögbundin í launþegasamning á meðan verktaki þarf að semja sérstaklega um þessi atriði. Verktaki þarf auk þess að standa sjálfur skil á skatti, tryggingagjaldi og sjá um lífeyrissjóðsgreiðslur.
Fræðslustjóri KSÍ Sigurður Ragnar Eyjólfsson fór yfir forsögu þess að hann hóf UEFA Pro Licence nám hjá enska knattspyrnusambandinu. Ásamt því að fara ítarlega yfir skipulag, kennsluefni og nokkur verkefni námsins. Í lok fyrirlestrarins fór Sigurður yfir hugsanlegar leiðir íslenskra þjálfara í framtíðinni til að taka UEFA Pro Licence. Willum Þór Þórsson þjálfari nýkrýndra Íslandsmeistara Vals í meistaraflokki karla ræddi um hlutverk þjálfarans, mikilvægi námsvilja og þess að vera alltaf að læra.
Lúka Kostic fór yfir forvalsferlið fyrir U17 drengja og sagði frá liðinu sem komst í úrslitakeppni Evrópumóts U17 landsliða drengja sem fór fram í Belgíu í maí síðastliðnum. Guðjón Þorvarðarson kynnti knattspyrnuakademíuna á Suðurlandi og starf sitt fyrir knattspyrnudeild Selfoss. Á Selfossi hefur átt sér gríðarleg uppbygging á síðast misserum. Ólafur Kristjánsson þjálfari meistaraflokks Breiðabliks bar saman liðin í úrslitaleik Visa bikarsins ásamt því að Heimir Guðjónsson og Ásmundur Arnarsson komu og tilkynntu byrjunarliðin og fóru yfir helstu áherslur í sókn og vörn fyrir leikinn.

6.10.07 - Viðurkenning fyrir vel unnin störf í þjálfun yngri flokka

Jón Ólafur Daníelsson og Kári Jónasson hlutu viðurkenningu fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka á bikarúrslitaráðstefnu KÞÍ. Báðir hafa þeir lagt mikinn metnað í þjálfunina og verið knattspyrnuþjálfarastéttinni til sóma við störf sín..

Jón Ólafur er fæddur 31. mars 1967 í Vestmannaeyjum. Hóf hann að þjálfa hjá íþróttafélaginu Þór Vestmannaeyjum árið 1983. Var mest við aðstoðarþjálfun á sumrin en sem aðalþjálfari á veturna. 1990 - 1992 þjálfaði hjá knattspyrnufélaginu Tý Vestmannaeyjum 2. og mfl kvenna. 2.flokkur félagsins varð íslandsmeistari 1991.
Árið 1994 réði hann sig í fullt starf hjá íþróttafélaginu Þór Vestmannaeyjum. Árin 1997 - 2002 þjálfar hann yngri flokka ÍBV með góðum árgangri, Shellmótsmeistarar 1999, Bikarmeistarar 2.fl kv 2000.
Árið 2002 flutti Jón Ólafur sig til Grindavíkur og þjálfaði þar í 5 ár í fullu starfi. Þjálfaði þar meðal annars fyrstu Íslandsmeistara Grindavíkur í kvennaflokkum, 4.fl.kv 2003 og einnig Íslandsmeistara 3.fl.kv 7manna 2004 ásamt silfurverðlaunum í 3.fl.kv. 2005.
Árið 2006 stjórnaði hann U17 landslið kvenna sem meðal annars sigruðu Holland 1-0 á Opna Norðurlandamótinu. 2007 fluttu Jón Óli aftur til Vestmannaeyja og vinnur fyrir ÍBV að þjálfun í fullu starfi. Íslandsmeistarar 3.fl.kv 7manna. Jón Óli er með UEFA A þjálfaragráðu.


Kári Jónasson er fæddur í Reykjavík árið 1979 og spilaði upp alla yngri flokka með Knattspyrnufélaginu Víkingi. Kári hóf sinn þjálfaraferil hjá Víking árið 1997 og kom þar að þjálfun 6.og 5.flokks karla til ársins 2001. Frá árinu 2002 hefur Kári þjálfað hjá Fylki, bæði 3.flokk og 4.flokk karla. Kári stýrði úrvalsliði Reykjavíkur á Borgarleikunum í Reykjavík árið 2007, einnig hefur Kári starfað við Knattspyrnuskóla bæði hjá Víking og Fylki. Kári stundar nú nám við Íþróttaskólann á Laugarvatni og hefur lokið KSI V og UEFA B.

2.10.07 - Bikarúrslitaráðstefna KÞÍ 2007

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) í samvinnu við Knattspyrnusamband Íslands heldur sína árlegu ráðstefnu í tengslum við VISA-bikarúrslitaleik karla þann 6. október næstkomandi.
Ráðstefnan fer fram Fræðslusetri KSÍ Laugardal og hefst dagskráin klukkan 09.00. Ráðstefnan kostar 3.000 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ en annars 6.000 krónur fyrir aðra og er gengið frá greiðslum fyrir upphaf ráðstefnunnar. Kaffi, hádegisverður og miði á leikinn er innifalið í þátttökugjaldinu.
Skráning fer fram á netfangið
kthi@isl.is eða hjá stjórnarmönnum KÞÍ (Sigurður Þórir Þorsteinsson, Jóhann Gunnarsson, Ómar Jóhannsson, Úlfar Hinriksson, Þórir Bergsson, Arnar Bill Gunnarsson og Kristján Guðmundsson).
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Þórir Þorsteinsson í síma 861-9401 (
sigurdurth@bhs.is)

Dagskrá

1.10.07 - Bikarúrslitaráðstefna KÞÍ

Dagskrá Bikarúrslitaráðstefnu KÞÍ
(Ráðstefnan haldin í samvinnu við KSÍ):

Laugardagur, 6. október 2007, haldið í fræðslusetri KSÍ, Laugardal

09.00 Setning - Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður KÞÍ
09.10 Minning um Ásgeir Elíasson (myndbrot)
09.20 Samningamál þjálfara - Brynar Níelsson lögmaður
09.40 UEFA Pro námskeið - Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ
10.10 HLÉ
10.20 Hlutverk þjálfarans - Willum Þór Þórsson þjálfari Íslandsmeistara Vals
10.50 Af hverju komst U-17 karla í úrslitakeppni EM? - Luka Kostic landsliðsþjálfari U-17
11.20 HLÉ
11.30 Knattspyrnuakademían á Suðurlandi - Guðjón Þorvarðarson
12.00 Tölfræði liðanna - Ólafur Kristjánsson þjálfari mfl. karla Breiðablik
12.15 Hvernig leggja þeir upp leikinn? Þjálfarar liðanna sem mætast í Visa bikarúrslitaleiknum
Ólafur Jóhannesson - FH
Ásmundur Arnarsson - Fjölnir
12:45 Þjálfarar ársins í mfl. karla og kvenna
Viðurkenningar fyrir vel unnin störf í yngri flokka þjálfun
13:00 Matur
14:00 Visabikarúrslitaleikur karla FH-Fjölnir á Laugardalsvelli

Ráðstefnustjóri: Njáll Eiðsson
Verð: 6.000 krónur, en 3.000 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ.
Kaffi, hádegisverður og miði á leikinn er innifalið í þátttökugjaldinu.

Skráning er hafin með tölvupósti á
ragga@ksi.is eða kthi@isl.is
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Þórir Þorsteinsson, formaður KÞÍ í síma 861-9401 (
sigurdurth@bhs.is)

23.9.07 - Ætlar þú á þjálfaranámskeið hjá KSÍ í haust?

Þjálfaranámskeið KSÍ eru að hefjast. Kröfur KSÍ um þjálfaramenntun má sjá hér að neðan ásamt dagskrá fyrsta þjálfaranámskeiðsins í haust (KSÍ I).
Skráning er hafin á öll þjálfaranámskeiðin en best er að skrá þjálfara með því að senda tölvupóst á
ragga@ksi.is eða siggi@ksi.is þar sem fram kemur fullt nafn þjálfarans, heimilisfang, gsm sími, netfang, nafn félagsins og á hvaða námskeið á að skrá viðkomandi.
Það hefur jafnan verið mikil þátttaka á þjálfaranámskeiðum KSÍ og því best að skrá sig sem fyrst ef þið viljið vera viss um að fá pláss.
Dagskrá þjálfaranámskeiða KSÍ í Reykjavík/Kópavogi í haust:KSÍ I 28-30. september og 12-14. október (verð 14.000 krónur)KSÍ IV 5-7. október (verð 16.000 krónur)KSÍ II 26-28. október og 2-4.nóvember (verð 14.000 krónur)
Námskeið á landsbyggðinni:KSÍ I námskeið verður haldið á Ísafirði 9-11.nóvember (verð 14.000 krónur)Það er einnig líklegt að það verði haldin námskeið á Akureyri og á Austurlandi 16-18.nóvember og 23-25.nóvember en verður auglýst betur síðar.
Við minnum á að þjálfarar allra karlaflokka hjá félögunum í Landsbankadeild karla og 1.deild karla verða að uppfylla kröfur um þjálfaramenntun svo að félagið fái keppnisleyfi keppnistímabilið 2008.
Dagskrá KSÍ 1 28. - 30. sept.
Reglugerð KSÍ um menntun knattspyrnuþjálfara

16.9.07 - Vel gengur að innheimta félagsgjaldið

Nú eru 270 félagsmenn búnir að greiða félagsgjaldið fyrir árið 2007. Í ár munu þeir sem geiða félagsgjaldið fá glæsilega púlsklukku að gjöf. Klukkurnar eru ekki komnar til landsins en félagsemenn verða látnir vita um leið og þær verða tilbúnar. Klukkur fyrir félagsmenn á landsbyggðinni verða sendar á tengiliði KÞÍ um leið og þær koma.

16.9.07 - Ómar og Úlfar fara á ráðstefnu UEFT í Helsinki

Ómar Jóhannsson gjaldkeri KÞÍ og Úlfar Hinriksson ritari KÞÍ fara á árlega ráðstefnu Evrópska knattspyrnuþjálfarafélagsins sem haldin verður í Helsinki 15. - 19. september. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni verða Graig Brown ( Derby County ), Tommy Wilson ( Glasgow Rangers ) og Roy Hodgson ( Finnland ). Þess má einnig geta að Luca Lúkas Kostic mun sýna æfingu frá Íslandi á sérstökum Norðurlandadegi ráðstefnunnar. Vænta má mikils fróðleiks frá þeim félögum, en skýrsla um ráðstefnuna verður sett á heimasíðuna um leið og hún verður tilbúin.

16.9.07 - Ráðstefna KÞÍ og KSÍ í tengslum við Visa bikarúrslitaleik karla

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) í samvinnu við Knattspyrnusamband Íslands heldur sína árlegu ráðstefnu í tengslum við VISA-bikarúrslitaleik karla þann 6. október næstkomandi. Ráðstefnan fer fram í húsakynnum KSÍ á Laugardalsvelli og dagskráin hefst klukkan 10.00. Ráðstefnan kostar 3.000 krónur fyrir félagsmenn KÞÍ en annars 6.000 krónur fyrir aðra og gengið er frá greiðslum fyrir upphaf ráðstefnunnar. Kaffi , hádegisverður og miði á bikarúrslitaleikinn eru innafalin í þátttökugjaldi. Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

10.9.07 - Ásgeir Elíasson látinn

Ásgeir Elíasson knattspyrnuþjálfari varð bráðkvaddur á heimili sínu í gærmorgun. Hann var 57 ára. Ásgeir var fæddur 22. nóvember 1949. Hann var sonur Elíasar Þorvaldssonar og Ragnheiðar Erlendsdóttur, en uppeldisfaðir hans var Björn J. Haraldsson.
Ásgeir var íþróttakennari frá Laugarvatni og kenndi víða. Ásgeir var einn reyndasti þjálfari landsins. Hann þjálfaði FH 1980, Þrótt 1981–84, Fram 1985–91, A-landslið karla 1991–95 og stýrði þá 35 landsleikjum, U-21 ára landsliðið 1992–94, Fram 1996–99, Þrótt 2000–2005, Fram 2006 og ÍR 2007. Hann er í hópi þeirra þjálfara sem náð hafa bestum árangri með A-landsliði karla, en liðið náði hæst á styrkleikalista FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, á þjálfunarárum hans.
Ásgeir lék landsleiki fyrir hönd Íslands í þremur íþróttagreinum, knattspyrnu, handknattleik og blaki. Hann var landsliðsmaður í knattspyrnu á árunum 1970–84 og lék 32 landsleiki með A-landsliði karla. Ásgeir lék tvo landsleiki í handknattleik á Spáni 1968, sem leikmaður ÍR.
Eftirlifandi eiginkona Ásgeirs er Soffía Guðmundsdóttir. Þau eiga tvo uppkomna syni. Fjölmenn minningarathöfn um Ásgeir fór fram í Grensáskirkju í gærkvöldi. Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands sendir fjölskyldu og aðstandendum Ásgeirs innilegar samúðarkveðjur.

7.9.07 - KSÍ VI þjálfaranámskeið - frestað

Vegna ónógrar þátttöku verður KSÍ VI þjálfaranámskeið ekki haldið á þessu ári eins og áætlað var. Reynt verður að halda námskeiðið á næsta ári ef næg þátttaka fæst.

5.9.07 - Tveir þjálfarar fá ávítur vegna ummæla

Úrskurður Aga- og úrskurðarnefndar vegna ummæla þjálfara í kjölfar leikja í 14. umferð Landsbankadeildar karla er þannig að tveir þjálfarar fá ávítur og knattspyrnudeildir þeirra sektaðar. Í samræmi við 18. grein reglugerðar KSÍ um aga-og úrskurðarmál ákvað framkvæmdastjóri KSÍ að vísa ummælum fjögurra þjálfara um dómara á opinberum vettvangi í kjölfar leikja í 14. umferð Landsbankadeildar karla til Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ. Þessir þjálfarar eru þeir Guðjón Þórðarson, Magnús Gylfason, Ólafur Helgi Kristjánsson og Leifur Garðarsson. Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ ákvað á fundi sínum í gær að ávíta Guðjón Þórðarson og Magnús Gylfason fyrir ummæli sín og sekta Knattspyrnudeildir ÍA og Víkings um 10.000 kr. vegna þeirra. Þá ákvað nefndin einnig að veita Leifi Garðarssyni og Ólafi Helga Kristjánssyni áminningu vegna ummæla þeirra.

31.8.07 - Ákall frá stjórn KSÍ

Knattspyrnuþjálfarar eru stjórnendur innan knattspyrnuhreyfingarinnar sem bera ábyrgð á framgangi leiksins innan vallar. Hlutverk þeirra er vandasamt og krefst þekkingar og reynslu. Þeir eru fagmenn íþróttarinnar. Það er því skylda þeirra að koma fram með ábyrgum hætti á opinberum vettvangi og standa vörð um ímynd knattspyrnuleiksins. Í umfjöllun og tilsvörum eiga þjálfara að kappkosta að gera leiknum skil á fræðandi og skemmtilegan hátt sem skapar áhuga og eykur vinsældir leiksins.
Starf dómara í knattspyrnuleik er vandasamt, það þekkja engir betur en mestu fagmenn leiksins, þjálfararnir. Þess vegna ber þjálfurum að virða störf dómara og fjalla um þau af fagmennsku án meiðandi eða særandi ummæla.

23.8.07 - Þjálfaranámskeið KSÍ í haust

Komnar eru dagsetningar á fyrstu þjálfaranámskeið haustsins og eru áhugasamir hvattir til þess að skrá sig í tíma en hægt er að byrja að skrá sig, þremur vikum áður en námskeið hefst.
KSÍ I þjálfaranámskeið verður haldið 28-30. september og 12-14. október í Reykjavík
KSÍ II þjálfaranámskeið verður haldið 26-28. október og 2.-4.nóvember í Reykjavík
KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið 5-7. október og hluti af því námskeiði verður bikarúrslitaráðstefna Knattspyrnuþjálfarafélagsins og Visa Bikarúrslitaleikur karla.
KSÍ VI þjálfaranámskeið er fyrirhugað í lok október/byrjun nóvember ef næg þátttaka fæst, en námskeiðið er haldið í Englandi. Staðfesta þarf skráningu á það námskeið með 50.000 króna staðfestingargjaldi fyrir 3. september og þá ætti líka að skýrast hvort af námskeiðinu verður.
Að auki er fyrirhugað að halda eftirfarandi námskeið úti á landsbyggðinni í haust eftir nánara samkomulagi við viðkomandi félög.
KSÍ I, KSÍ II og KSÍ III á Akureyri (fáist næg þátttaka)KSÍ I eða KSÍ II á Ísafirði (fáist næg þátttaka)KSÍ I eða KSÍ II á Austurlandi (fáist næg þátttaka)KSÍ I eða II í Vestmannaeyjum (fáist næg þátttaka)
Fyrirhugaðar helgar fyrir námskeið á landsbyggðinni eru helgarnar 9-11.nóvember, 16-18.nóvember og 23-25.nóvember eftir pöntunum.
KSÍ er einnig að huga að endurmenntunarnámskeiðum um þessar mundir en nánari upplýsingar um þau verða gefnar út síðar.
Skráning á öll námskeið hefst 3 vikum fyrir hvert og eitt þeirra.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ (
siggi@ksi.is)

3.8.07 - Greiðsluseðill fyrir félagsgjaldinu að berast knattspyrnuþjálfurum

Nú fer knattspyrnuþjálfurum um allt land að berast greiðsluseðill vegna félagsgjaldsins fyrir árið 2007. Stjórn KÞÍ vonar að félagsmenn bregðist jafn vel við og hingað til og greiði greiðsluseðilinn sem allra fyrst. Allir þeir sem greiða félagsgjaldið fá glaðning frá KÞÍ en ekki liggur enn fyrir hvað það verður, mun koma í ljós í lok ágúst. Á aðalfundi félagsins í fyrra var samþykkt að hækka félagsgjaldið í 3.000 krónur. Í fyrra greiddu um 340 knattspyrnuþjálfarar víðsvegar að af landinu félagsgjaldið og vonumst við eftir jafn góðum viðbrögðum í ár. Stjórn KÞÍ óskar að endingu öllum félagsmönnum sínum góðs gengis í sumar og vonar að þeir verði félagi sínu til sóma á knattspyrnuvöllum landsins.

30.7.07 - Húsakynni KSÍ vígð formlega

Laugardaginn 28. júlí fór fram formleg vígsla á nýjum húsakynnum Knattspyrnusambands Íslands. Michel Platini, forseti UEFA, vígði húsið en margir góðir gestir heiðruðu Knattspyrnusambandið með nærveru sinni m.a. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. Bygging húsnæðisins var m.a. styrkt með fjármagni frá UEFA og FIFA og voru fulltrúar frá þeim viðstaddir vígsluna og lýstu mikilli ánægju með hvernig til tókst.
Gestum var boðið að skoða húsakynnin og var svo boðið til kvöldverðar á eftir í tilefni af 60 ára afmælis KSÍ. Við þetta tækifæri fengu 5 aðilar heiðurskross KSÍ fyrir ómetanlegt starf þeirra fyrir íslenska knattpyrnu en það er æðsta orða sem KSÍ veitir. Þessir aðilar voru: Ásgeir Sigurvinsson, Björgólfur Guðmundsson, Guðmundur Jónsson, Halldór Einarsson (Henson) og Hannes Þ. Sigurðsson. Gullmerki KSÍ fengu við þetta tilefni: Lars-Åke Lagrell, forseti sænska knattspyrnusambandsins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og Ómar Einarsson, sviðsstjóri ÍTR.

28.7.07 - KSÍ VI Þjálfaranámskeið í Englandi í haust

Hér að neðan er umsóknareyðublað að KSÍ VI þjálfaranámskeiðinu sem verður haldið í Englandi í haust. Námskeiðið er ætlað þjálfurum sem hafa lokið við KSÍ V þjálfaranámskeiðið og koma að þjálfun 3.flokks eða eldri aldurshópa.
Námskeiðið er vikulangt en nákvæm tímasetning liggur ekki alveg fyrir. Reiknað er með að námskeiðið verið haldið síðustu vikuna í október eða fyrstu vikuna í nóvember.
Á síðasta ári kostaði námskeiðið 160.000 krónur og má reikna með því að þetta námskeið kosti eitthvað svipað, en heildarkostnaður ætti ekki að verða meiri en 200.000 krónur. Inni í námskeiðsgjaldinu er allur kostnaður nema hugsanlega 1-2x út að borða á veitingastað.
Innifalið í námskeiðsgjaldinu er:
Flug, rútukostnaður innanlands og í Englandi, gisting, fullt fæði, afnot af völlum og aðstöðu, miði á 1-2 leiki í ensku úrvalsdeildinni, íþróttafatnaðu og námskeiðsgjald.
Hér að neðan má líka sjá dagskrá námskeiðsins í fyrra en dagskráin mun breytast mikið þar sem hvert námskeið er sérsniðið út frá leikjum ensku úrvalsdeildarinnar og heimsóknar í knattspyrnuakademíu úrvalsdeildarliðs. Dagskráin gefur þó hugmynd um hvað námskeiðið snýst. Umsóknum þarf að skila inn fyrir 7. ágúst.
Sækja þarf formlega um námskeiðið með því að fylla út umsóknareyðublaðið og skila til Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar fræðslustjóra KSÍ (
siggi@ksi.is) fyrir 7.ágúst næstkomandi.
Fræðslunefnd KSÍ mun velja þátttakendur inn á námskeiðið eftir hæfni umsækjenda. Öllum umsækjendum verður svarað með tölvupósti. Stefnt er að því að svara umsækjendum í síðasta lagi 10.ágúst. Frekari upplýsingar um námskeiðið veitir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ (
siggi@ksi.is)

Umsóknareyðublað

Dagskrá námskeiðs 2006

20.7.07 - Hundrað nýjar æfingar í æfingasafnið

Um 100 nýjum Homeground æfingum hefur verið bætt í æfingasafnið á vef KSÍ. Um er að ræða fjölbreyttar og áhugaverðar æfingar frá mörgum af þekktustu þjálfurum landsins.
Á meðal höfundanna að þessu sinni eru þjálfarar liða í Landsbankadeildum karla og kvenna, auk tveggja af þjálfurum yngri landsliða Íslands. Æfingarnar má skoða á
ksi.is.

2.7.07 - Ályktun frá stjórn KÞÍ

Stjórn KÞÍ skorar á knattspyrnuþjálfara þessa lands að sporna gegn notkun á Snusi. Ósiður þessi er innfluttur og á ekki heima í knattspyrnuflóru Íslands. Við skorum á þjálfara að vera til fyrirmyndar í þessum efnum og nota ekki Snusið og sjá til þess að fyrirmyndir í meistaraflokkum félaganna sem og landsliðsfólk yngri landsliða okkar noti ekki þenann sóða sem Snusið er.

18.6.07 - Gunnar fer til Nurnberg

Gunnar Guðmundsson þjálfari mfl. HK í knattspyrnu fer í boði KÞÍ á þjálfararáðstefnu þýska Knattspyrnuþjálfarafélagsins sem haldin verður í Nurnberg 22. - 25. júlí n.k. Gunnar mun skila skýrslu um ráðstefnuna fljótlega að henni lokinni.

7.6.07 - Ráðstefna þýska Knattspyrnuþjálfarafélgsins í Nurnberg

Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands hefur verið boðið að senda tvo fulltrúa á ráðstefnu þýska knattspyrnuþjálfarafélagsins í Nurnberg 22. júlí - 25. júlí í sumar. Uppihaldið og námkskeiðskostnaður er KÞÍ að kostnaðarlausu. Sérstaklega skal tekið fram að ráðstefnan fer öll fram á þýsku. KÞÍ vill bjóða einhverjum félagsmönnum sínum að nýta sér þetta góða boð og eru áhugasamir beðnir að senda tölvupóst á kthi@isl.is fyrir 15. júní n.k. Athugið að þetta gildir eingöngu fyrir félagsmenn KÞÍ.

7.6.07 - 58 þjálfarar útskrifast með KSÍ A þjálfaragráðu

Laugardaginn 2. júní sl. útskrifuðust 58 þjálfarar með KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu og var útskriftin haldin í höfuðstöðvum KSÍ. Að útskrift lokinni var þjálfarahópnum boðið á landsleik Íslands og Liechtenstein á Laugardalsvelli. Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður KÞÍ hélt stutta ræðu við útskriftina. Hægt er að sjá skipulag þjálfaranámskeiða KSÍ hér sem og námsskrá fyrir KSÍ A þjálfaranámskeið.

16.5.07 - Breytingar á knattspyrnulögum og áhersluatriði dómaranefndar

Óverulegar breytingar eru gerðar á knattspyrnulögunum 2007, eina raunverulega breytingin er eftirfarandi ákvæði í kaflanum um búnað leikmanna: ef klæðst er flík innan undir keppnispeysu skulu ermar hennar vera í sama meginlit og ermar keppnispeysunnar.
Þetta er í stíl við núverandi ákvæði um stuttbuxur, sem gilda mun áfram, en þar segir: ef klæðst er buxum innan undir skulu þær vera í sama meginlit og stuttbuxurnar.
Breytingar á knattspyrnulögunum taka gildi alþjóðlega 1. júlí 2007, en hér á landi strax við upphaf Íslandsmótsins í knattspyrnu 12. maí 2007.
Breytingar á knattspyrnulögunum 2007

Áhersluatriði dómaranefndar 2007
Sem fyrr hefur dómaranefnd sent frá sér áhersluatriði fyrir árið 2007. Allir hlutaðeigandi eru hvattir til þess að kynna sér þessi atriði vandlega.
Áhersluatriði dómaranefndar

7.5.07 - Breyttur opnunartími skrifstofu KSÍ

Skrifstofa KSÍ mun frá og með 15. maí næstkomandi, vera með breyttan opnunartíma. Opið verður þá á milli 8 og 16 alla virka daga í stað 9 og 17. Athugið að breyttur opnunartími verður frá og með þriðjudeginum 15. maí.

6.5.07 - Knattspyrnuþjálfararáðstefna á Selfossi

Ungmennafélag Selfoss og Knattspyrnuakademía Íslands á Suðurlandi standa að knattspyrnuþjálfararáðstefnu á Selfossi dagana 18. - 20. maí nk. Fyrirlestrar fara fram á Hótel Selfossi en verklegir tímar á gervigrasvellinum á Selfossi.

Dagskrá

19.4.07 - Matarfundinum frestað

Matarfudi KÞÍ sem vera átti á Kaffi Reykjavík föstudaginn 20. apríl hefur verið frestað vegna lélegrar þátttöku. KÞÍ stefnir á að halda fundinn 2. júní n.k.

17.4.07 - Vorfundur KÞÍ á Akureyri

Vorfundur KÞÍ á norðurlandi verður haldinn í Hamri Félagsheimili Þórs laugardaginn 28. apríl kl. 10.00 – 14.00

Dagskrá:
Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður KÞÍ setur vorfundinn.

Viðar Sigurjónsson sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ talar um starfsemi ÍSÍ á norðurlandi.

Að fyrirbyggja meiðsli ( Forvarnir og mælingar )
Einar Einarsson sjúkraþjálfari ms í heilbrigðistækni.

Léttur hádegisverður ( Súpa og brauð )

Ólafur Kristjánsson þjálfari meistaraflokks Breiðabliks.
Þjálfun í Danmörku og Íslandi, Atvinnumennska – Áhugamennska.

Þáttökugjald kr.1.500 –


Þáttaka er öllum opin sem hafa áhuga knattspyrnu og knattspyrnuþjálfun.

Þáttökutilkynningar berist til Tryggva Gunnarssonar símar 462-7921 / 660-3168 fyrir 26.apríl. Einnig er hægt að tilkynna þáttöku á netfang
kthi@isl.is


10.4.07 - Matarfundur á Kaffi Reykjavík

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands stendur fyrir matarfundi á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík við Vesturgötu í Reykjavík, föstudaginn 20. apríl kl. 19.00. Miðaverð er 3500 kr. og innifalið í því þriggja rétta glæsilegur kvöldverður.

Eggert Skúlason fyrrum fréttamaður og núverandi talsmaður Eiðs Smára Guðhjonsen er ræðumaður kvöldsins.

Þekktur grínari mætir og fer með gamanmál.

Veislustjóri er Logi Ólafsson.

Knattspyrnuþjálfarar eru hvattir til að mæta og gera sér glaðan dag í góðra vina hópi.

Tilkynna skal þátttöku til einhvers stjórnarmanna KÞÍ eða á tölvupósti til
kthi@isl.is

9.4.07 - Starf í mótadeild KSÍ

Laust er til umsóknar starf í mótadeild KSÍ þar sem Halldór Örn Þorsteinsson mun láta af störfum í sumar. Viðkomandi verður að geta hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 1. júní n.k. Um er að ræða starf í mótadeild sambandsins en auk þessa mun viðkomandi sinna störfum er snúa að grasrótarverkefnum innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Starfið hentar konum ekki síður en körlum.
Umsóknum ásamt fylgigögnum (upplýsingum um fyrri störf, menntun, o.s.frv) skal skila á skrifstofu KSÍ eigi síðar en 25. apríl n.k en senda má umsóknir á póstfangið
birkir@ksi.is

6.4.07 - Breytt dagsetning á KSÍ V þjálfaranámskeiðinu

KSÍ V þjálfaranámskeiðið sem var fyrirhugað að halda helgina 13-15. apríl hefur verið fellt niður en ákveðið hefur verið að halda námskeiðið 27-29. apríl í staðinn. Skráning er hafin hjá Ragnheiði á skrifstofu KSÍ (ragga@ksi.is) eða í síma 510-2900.
KSÍ V þjálfaranámskeiðið verður fyrsta þjálfaranámskeiðið sem KSÍ heldur í nýjum höfuðstöðvum Knattspyrnusambandsins.

2.4.07 - Sigurður Ragnar á UEFA Pro Licence námskeið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fræðslustjóri og landsliðsþjálfari, hefur fengið inni á UEFA Pro Licenc e þjálfaranámskeiði hjá enska knattspyrnusambandinu sem hefst í Warwick í Englandi 25. júní. Námskeiðið stendur yfir í alls 1 ár með staðbundnum lotum, fjarnámi, verkefnavinnu, símafundum, þjálfaradagbók, kennaraheimsóknum o.fl. Alls voru 20 þjálfarar teknir inná þetta námskeið. Einungis einn Íslendingur er með UEFA Pro Licence þjálfaragráðu en það er Teitur Þórðarson þjálfari KR. UEFA Pro licence er æðsta stig þjálfaramenntunar sem UEFA viðurkennir.
KSÍ vonast til að geta boðið upp á UEFA Pro þjálfaramenntun á næstu árum, annað hvort á eigin vegum eða í samvinnu við enska knattspyrnusambandið.

26.3.07 - KSÍ 60 ára

Í dag, mánudaginn 26. mars 2007, er Knattspyrnusamband Íslands 60 ára. Eftir sextíu ár hefur starfsemi sambandsins líklega aldrei verið meiri né fjölbreyttari. Stjórn Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands óskar KSÍ til hamingju með daginn.

13.3.07 - KSÍ skipar í nýja þjálfaranefnd

Á síðasta fundi stjórnar KSÍ er haldinn var 8. mars síðastliðinn var skipað í tvær nýjar nefndir. Er hér um að ræða heilbrigðisnefnd og þjálfaranefnd. Ennfremur voru skipaðir nýir aðilar í landsliðsnefnd karla og kvenna. Heilbrigðisnefnd sem ætlað er að vera ráðgefandi varðandi heilbrigðismál, lyfjamál og lyfjaeftirlit en FIFA gerir kröfu um að slík nefnd sé starfandi innan knattspyrnusambanda. Þjálfaranefnd er ætlað er að vera ráðgefandi varðandi þjálfun og fræðslustarf KSÍ.
Þjálfaranefnd skipa:
Ásgeir Elíasson
Ásgeir Sigurvinsson
Atli Eðvaldsson
Eyjólfur Sverrisson
Guðjón Þórðarson
Guðni Kjartansson
Helena Ólafsdóttir
Jóhannes Atlason
Jörundur Áki Sveinsson
Logi Ólafsson
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
Vanda Sigurgeirsdóttir

2.3.07 - Sumarfrí í yngri flokkum 2007

Mótanefnd KSÍ tekið þá ákvörðun varðandi niðurröðun leikja sumarið 2007 að engir leikir verði á tímabilinu 23. júlí - 8. ágúst í 4. flokki og yngri aldursflokkum. Hér er eingöngu átt við leiki á vegum KSÍ en ekki opin mót aðildarfélaga. Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að mikið er um sumarfrí á þessu tímabili og því vill mótanefnd koma til móts við leikmenn í yngstu flokkum og foreldra þeirra.

16.2.07 - Nýr framkvæmdastjóri KSÍ

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í dag að veita formanni heimild til að ráða Þóri Hákonarson í stöðu framkvæmdastjóra KSÍ. Þórir sem fæddur er 1969, er með BA próf í Stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MSc próf í International Relations frá London School of Economics and Political Science. Hann var skrifstofustjóri Siglufjarðarkaupstaðar frá árinu 1997-2006 og um leið staðgengill bæjarstjóra. Hann hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Knattspyrnufélag Siglufjarðar og hefur verið formaður frá árinu 2001.

12.2.07 - Eggert kjörinn heiðursformaður KSÍ

Á ársþingi KSÍ var Eggert Magnússon kjörinn heiðursformaður sambandsins. Heiðursformaður á rétt til setu og hefur málfrelsi á stjórnarfundum KSÍ og kemur fram fyrir hönd sambandsins þegar stjórn þess óskar eftir. Heiðursformenn KSÍ eru nú 2, þeir Eggert Magnússon og Ellert B Schram. Í lokahófi ársþingsins var Eggert Magnússon einnig sæmdur heiðurskrossi úr gulli, en krossinn er æðsta heiðursmerki KSÍ og veitist aðeins þeim sem unnið hafa knattspyrnuíþróttinni ómetanlegt gagn. Guðlaugu Ólafsdóttur, eiginkonu Eggerts, var færð kveðjugjöf frá KSÍ við sama tækifæri.

10.2.07 - Geir Þorsteinsson kosinn formaður KSÍ

61. ársþing KSÍ var haldið á Hótel Loftleiðum í dag. Geir Þorsteinsson var kjörinn formaður KSÍ og er sá áttundi sem að gegnir því embætti. Eggert Magnússon kvaddi KSÍ eftir rúm 17 ár í formannsembætti. Þrír nýir aðilar voru kjörnir í stjórn KSÍ.
Þrír nýir aðilar komu inn í stjórn KSÍ, þau Guðrún Inga Sívertsen, Stefán Geir Þórisson og Vignir Þormóðsson.

10.1.07 - Þjálfaranámskeið á vegum KSÍ árið 2007

KSÍ mun verða með eftirfarandi námkskeið á árinu 2007.

KSÍ III 26.-28. janúar
KSÍ VI skriflegt próf 2.febrúar klukkan 14:00
KSÍ VII 2.febrúar klukkan 19:00
UEFA B próf 11. febrúar klukkan 10.00-12.00 (eina UEFA B prófið sem verður í ár)
KSÍ V 13-15. apríl
Öll þessi námskeið fara fram í Reykjavík.
Skráning er hafin í alla ofangreinda viðburði nema KSÍ V.
Skráning fer fram á tölvupósti til Ragnheiðar Elíasdóttur (ragga@ksi.is)
Taka þarf fram fullt nafn, kennitölu, fullt heimilisfang, gsm síma, nafn félags og netfang.

Í haust verða svo haldin KSÍ I, KSÍ II, KSÍ IV og KSÍ VI þjálfaranámskeið. Skráning á þau námskeið hefst í september.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri KSÍ (
siggi@ksi.is)