Fréttir
03.09.10 - Þjálfarastyrkir ÍSÍ
ÍSÍ auglýsir eftir umsóknum um þjálfarastyrki fyrir tímabilið júlí – desember 2010. Þjálfarar sem sækja sér menntun erlendis á fyrrgreindu tímabili geta sótt um styrk á þar til gerðum eyðublöðum inn á isi.is sem finna má undir „Efnisveita”.
01.09.10 - Greiðsluseðlar fyrir félagsgjaldinu að berast - glæsileg mappa til þeirra sem greiða fyrir 10. október 2010

Nú fer knattspyrnuþjálfurum um allt land að berast greiðsluseðill vegna félagsgjaldsins fyrir árið 2010. Stjórn KÞÍ vonar að félagsmenn bregðist jafn vel við og hingað til og greiði greiðsluseðilinn sem allra fyrst. Allir þeir sem greiða félagsgjaldið fyrir 10. október 2010 munu fá glæsilega og vandaða möppu með merki KÞÍ. Á aðalfundi félagsins í fyrra kom fram að unnið væri að því að láta eitthvað fylgja félagsgjaldinu eins og undandfarin ár, og telur stjórn KÞÍ að með þessu sé verulega verið að koma á móts víð félagsmenn, sem reyndar hafa staðið vel við bakið á félagi sínu fram að þessu. Stjórn KÞÍ vonast eftir jafn góðum viðbrögðum frá félagsmönnum í ár eins og undanfarin ár. Möppunum verður síðan komið til félagsmanna eins fljótt og mögulegt er og með hvaða hætti það verður gert, verður auglýst hér á heimasíðunni.
01.09.10 - Ásmundur Haraldsson tekur við yngri flokkastarfi Stjörnunnar
Barna-og unglingaráð Knattspyrnudeildar Stjörnunnar hefur ráðið Ásmund Guðna Haraldsson sem yfirþjálfara yngriflokka á næstu leiktíð. Auk þess að þjálfa yngri flokka mun Ásmundur hafa yfirumsjón með öllu faglegu barna- og unglingastarfi deildarinnar. 30.08.10 - KSÍ VI þjálfaranámskeið í Englandi í janúar 2011
KSÍ heldur VI. stigs þjálfaranámskeið í Wokefield Park á Englandi dagana 9.-16. janúar 2011. Reiknað er með að fleiri þjálfarar sæki um námskeiðið en hægt er að taka inn. Umsækjendur þurfa því að fylla út umsóknareyðublað, og verða að hafa lokið KSÍ V þjálfaranámskeiði eða verða að taka KSÍ V þjálfaranámskeið sem haldið verður í nóvember á þessu ári.


