Fréttir

30.08.10 - Sigurður Helgason tekur við Gróttu

Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu hefur ráðið Sigurð Helgason til að taka við þjálfun á meistaraflokki félagsins. Sigurður hefur þjálfað yngri flokka félagsins síðustu árin með góðum árangri og er núverandi þjálfari 2. og 3. flokks hjá félaginu. Sigurður mun taka strax við meistarflokki félagsins og stýra liðinu síðustu leikjum liðsins í 1.deildinni þar sem Grótta er í mikilli baráttu að halda sínu sæti í deildinni.
meira...

28.08.10 - Ferð til Tékklands með norskum knattspyrnuþjálfurum

Norska Knattspyrnuþjálfarafélagið hefur boðið KÞÍ að senda tvo fulltrúa í námsferð með norskum knattspyrnuþjálfurum til Tékklands, nánar tiltekið, Prag. Tékkar hafa fengið viðurkenningu fyrir framúrskarandi barna og unglingaþjálfun undanfarin ár og bera úrslit landsliða þeirra þess glöggt merki. Þá er óþarfi að telja upp þá Tékknesku leikmenn sem spila með mörgum af bestu liðum Evrópu.
meira...

27.08.10 - Dragan Stojanovic hættur með Þór/KA - Viðar Sigurjónsson tekinn við

Í gær steig Dragan Kristinn Stojanovic til hliðar sem þjálfari Þór/KA og mun þar af leiðandi ekki stýra liðinu í síðustu leikjum liðsins í Pepsí-deildinni. Þessa ákvörðun tilkynnti Dragan leikmönnum liðsins fyrir æfingu í gær og knattspyrnudeild Þórs staðfesti þessi tíðindi.  
 
meira...

14.08.10 - Vel heppnuð ráðstefna í tengslum við bikarúrslitaleikina

KÞÍ í samvinnu við KSÍ stóðu fyrir ráðstefnu í tengslum við úrslitaleikina í VISA bikarkeppnum karla og kvenna.  Fjöldi knattspyrnuþjálfara mætti á ráðstefnuna sem þótti takast mjög vel.  Aðal fyrirlesari á ráðstefnunni var Stuart Baxter landsliðsþjálfari Finnlands í karlaflokki.
meira...

11.08.10 - Dagskrá Bikarúrslitaráðstefnu KÞÍ og KSÍ

Eins og fram hefur komið mun KÞÍ í samvinnu við KSÍ standa fyrir ráðstefnu í tengslum við úrslitaleiki í VISA bikarkeppni karla og kvenna. Undanfarin ár hafa þessir viðburðir verið vel sóttir af þjálfurum. Í ár verður ráðstefnan haldin sameiginleg á laugardeginum í húsakynnum KSÍ í Laugardal. 
meira...

08.08.10 - Njáll Eiðsson tekinn við Víði Garði

Njáll Eiðsson hefur verið ráðinn þjálfari Víðis í Garði en hann mun stýra liðinu út tímabilið.  Njáll tekur við liðinu af Jakobi Má Jónharðssyni sem hætti með Víðismenn í gær.
meira...

07.08.10 - Opin æfing hjá A-landsliði karla

Ólafur Jóhannesson A-landsliðsþjálfari karla býður alla þjálfara velkomna að fylgjast með æfingu A-landsliðs karla sem fer fram á Framvellinum þriðjudaginn 10. ágúst kl 10.30.  Þeir þjálfarar sem hafa lokið við KSÍ B eða KSÍ A gráðu geta fengið 3 tíma í endurmenntun með því að fylgjast með æfingunni og skila inn skýrslu um æfinguna til fræðsludeildar KSÍ. 
meira...

07.08.10 - Jakob Már Jónharðsson hættur þjálfun Víðis

Jakob Már Jónharðsson er hættur þjálfun 2. deildarliðs Víðis úr Garði en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í morgun.
meira...

06.08.10 - Bikarúrslitaráðstefna KÞÍ og KSÍ laugardaginn 14. ágúst

Í tengslum við úrslitaleiki í VISA bikarkeppni karla og kvenna mun Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands í samstarfi við Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir ráðstefnu. Undanfarin ár hafa þessir viðburðir verið vel sóttir af þjálfurum. Í ár verður ráðstefnan haldin sameiginleg á laugardeginum í húsakynnum KSÍ í Laugardal. 
meira...

27.07.10 - Endurmenntun þjálfara - Viðtal við Heimi Guðjónsson

Hér má sjá viðtal við Heimi Guðjónsson en viðtalið er hluti af endurmenntun fræðsludeildar KSÍ.

meira...

23.07.10 - John stýrir Aftureldingu - þriðji meistaraflokkurinn

Írinn John Andrews hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Aftureldingar en þetta var leikmönnum félagsins tilkynnt á fundi rétt í þessu. Fyrr í dag hafði félagið staðfest að Ásgrímur Helgi Einarsson hafi látið af störfum af persónulegum ástæðum.
meira...

23.07.10 - Ásgrímur Helgi hættur með Aftureldingu

Ásgrímur Helgi Einarsson er hættur sem þjálfari Aftureldingar. Þetta staðfesti hann sjálfur við Fótbolta.net rétt í þessu en frétt þessa efnis hafði birst á mbl.is fyrir skömmu.

,,Ég óskaði eftir þessu sjálfur af persónulegum ástæðum," sagði Ásgrímur Helgi við Fótbolta.net í dag.

 
meira...

19.07.10 - KSÍ VI þjálfaranámskeið í Englandi í janúar 2011

KSÍ heldur VI. stigs þjálfaranámskeið í Wokefield Park, Englandi dagana 9.-16. janúar 2011.  Reiknað er með að fleiri þjálfarar sæki um námskeiðið en hægt er að taka inn.  Umsækjendur þurfa því að fylla út umsóknareyðublað.  Umsækjendur verða að hafa lokið KSÍ V þjálfaranámskeiði eða verða að taka KSÍ V þjálfaranámskeið sem haldið verður í nóvember á þessu ári.
meira...

19.07.10 - Logi Ólafsson hættur hjá KR - Rúnar tekinn við

Logi Ólafsson hefur verið rekinn sem þjálfari KR þetta staðfesti Kristinn Kjærnested formaður knattspyrnudeildar KR.  Hann staðfesti að Rúnar Kristinsson taki við og Pétur Pétursson verða honum til aðstoðar.
meira...

15.07.10 - Daði Dervic hættur með Aftureldingu - Þorsteinn tekur við

Afturelding úr Mosfellsbæ tillkynnti nú í kvöld að Izudin Daði Dervic sé hættur þjálfun liðsins og Þorsteinn Magnússon sem var þjálfari í yngri flokkum félagsins tekur við starfi hans.
meira...

14.07.10 - Bagg er bögg – Átaksverkefni gegn munntóbaksnotkun

KSÍ, Jafningjafræðslan og Lýðheilsustöð hafa snúið bökum saman í baráttunni gegn notkun munntóbaks undir slagorðinu „Bagg er bögg“.  Átakinu er ætlað að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki, þar sem áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur.  Verkefnið var kynnt á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag.
meira...

12.07.10 - Kristófer hættur að þjálfa Reyni - Kjartan Másson tekinn við

Knattspyrnudeild Reynis og Kristófer Sigurgeirsson hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum nú þegar, og óska þeir honum velfarnaðar.

Jafnframt þessu hefur Kjartan Másson hin gamla kempa verið ráðinn sem þjálfari og til aðstoðar honum eru Ólafur Ívar Jónsson og Sinisa Valdimar Kekic.

meira...

07.07.10 - Willum og Þorvaldur með UEFA Pro gráðu

Í lok júní útskrifuðust tveir íslenskir þjálfarar með UEFA Pro þjálfaragráðu frá enska knattspyrnusambandinu. Það voru þeir Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, og Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram. Við sama tilefni var nýtt UEFA Pro námskeið sett af stað þar sem Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, er meðal þátttakenda.
meira...

02.07.10 - KSÍ er komið á Facebook!

KSÍ hefur sett á laggirnar opinbera Facebook-síðu sína, sem verður með svolítið öðruvísi sniði en vefur sambandsins, ksi.is.  Á Facebook-síðunni (KSÍ - Knattspyrnusamband Íslands) er póstað ýmsu áhugaverðu efni tengdu íslenskri knattspyrnu.

meira...

30.06.10 - Þjálfaranámskeið á haustmánuðum 2010

Búið er að ákveða dagsetningar fyrir þjálfaranámskeið KSÍ sem haldin verða nú á haustmánuðum.  Einnig má sjá drög af dagskrá fyrir fyrstu mánuði 2011.  Athygli er vakin á því að endurmenntunanámskeið og önnur námskeið verða auglýst sérstaklega.  Í flestum tilfellum eru námskeið haldin í Reykjavík en þau eru haldin einnig úti á landi eftir óskum og/eða þörfum.
meira...

24.06.10 - Alþjóðleg íþróttasálfræðiráðstefna um afreksíþróttir

Þann 30. júní munu níu af fremstu íþróttasálfræðingum Evrópu koma til landsins og halda ráðstefnu um íþróttasálfræði og afreksíþróttir í samstarfi við ÍSÍ og Háskólann í Reykjavík. Einkunnarorð ráðstefnunnar er hagnýting. Þátttakendur munu læra hagnýta hluti til að auka færni sína í aðkomu að afreksíþróttamönnum.
meira...

22.06.10 - Mikael Nikulásson hættur með ÍH

Mikael Nikulásson er hættur þjálfun 2. deildarliðs ÍH.  Þetta staðfesti Björgvin Helgi Stefánsson formaður knattspyrnudeildar félagsins í samtali við Fótbolta.net í kvöld.

Hann sagði Mikael hætta núna til að einbeita sér að viðskiptum sínum. Brynjar Þór Gestsson tekur nú einn við liðinu af en hann hefur þjálfað liðið fram að þessu ásamt Mikael.
meira...

15.06.10 - Súpufundur hjá KSÍ

KSÍ heldur 4. súpufund þriðjudaginn 22. júní næstkomandi klukkan 12.15 í höfuðstöðvum KSÍ við Laugardalsvöll.
 
Að þessu sinni mun Dr. David Sanders, sérfræðingur í lýðheilsumálum fjalla um heilbrigðismál tengd HM í Suður-Afríku.
Dr. Sanders er frá Suður-Afríku og erindi hans kallast: "In the Shadow of the World Cup of Soccer: Health Challenges and Public Health in South Africa". Erindi Dr. Sanders fer fram á ensku.
meira...

14.06.10 - Ragnar hættur með KS/Leiftur

Ragnar Hauksson sagði í kvöld upp starfi sínu sem þjálfari meistaraflokks KS/Leifturs í knattspyrnu. Félagið hefur ekki fundið eftirmann Ragnars en stjórnin leitar nú að þjálfara.

Lið KS/Leifturs sigraði Aftureldingu í síðasta leik sínum 3 -1 en liðið er nú í 5. - 6. sæti 2. deildar með 7 stig, 6 stigum á eftir BÍ/Bolungarvík sem er í fyrsta sæti.

meira...

11.06.10 - Ólafur og Elís Þór þjálfa Stjörnuna

Ólafur Þór Guðbjörnsson og Elís Þór Rafnsson voru í kvöld ráðnir þjálfarar kvennaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu til loka yfirstandandi keppnistímabils.

Þeir taka við af Andrési Ellerti Ólafssyni sem þurfti að láta af störfum af persónulegum ástæðum.

meira...

05.06.10 - Opin æfing hjá Breiðablik

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands verður í samstarfi við félögin í Pepsí-deildunum í sumar um að opna aðgang að meistaraflokksæfingum félaganna.  Breiðablik ríður á vaðið en fimmtudaginn 10. júni er öllum knattspyrnuþjálfurum landsins boðið að koma og fylgjast með æfingu meistaraflokks karla. 
 
meira...

04.06.10 - Þjálfurum býðst að fylgjast með námskeiðum þjálfara Arsenal

Eins og flestir vita þá verður Arsenal soccer school með námskeið hjá KA á Akureyri dagana 14. til 18. júní í sumar.  Alls munu sex þjálfarar koma frá skólanum.  Nú býðst þjálfurum á Íslandi gott tækifæri til þess að fylgjast með þessum þjáfurum við störf og læra af þeim.   Þetta er frábært tækifæri til þess að endurmennta sig og fá nýjar og ferskar hugmyndir.

meira...

04.06.10 - Andrés Ellert hættur þjálfun Stjörnunnar

Andrés Ellert Ólafsson, sem tók við þjálfun kvennaliðs Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu á vormánuðum, hefur látið af starfi sínu sem þjálfari.  Andrés Ellert óskaði eftir því að láta störfum af persónulegum ástæðum og var orðið við þeirri ósk með þungum huga, eins og segir í yfirlýsingu Stjörnunnar og Andrésar Ellerts.
meira...

03.06.10 - Yfirþjálfari unglingaliðs AC Milan þjálfar á námskeiði hjá Fylki - Félagsmönnum KÞÍ boðið að fylgjast með æfingum

Knattspyrnudeild Fylkis mun halda námskeið dagana 12 – 16 júlí þar sem yfirþjálfari unglingaliðs AC Mílan munu leiðbeina.   Á námskeiðinu munu tveir þjálfarar frá AC Milan, Emanuele Pischetola en hann er yfirþjálfari unglingastigs hjá AC Milan og Maurizio Buriani en hann er þrekþjálfari og er í þjálfarateymi AC Milan.  Með þeim verða síðan þjálfarar Fylkis.  Æft verður dagana 12–16 júlí tvisvar á dag fyrst klukkan 10:00 um morguninn og síðan klukkan 13:30.  Ætlunin er að hafa 60 stráka á námskeiðinu og munu þeir vinna 10 saman í hóp.    Knattspyrnudeild Fylkis býður öllum félagsmönnum KÞÍ að koma og fylgjast með æfingunum í sumar.
meira...

02.06.10 - Elísabet er harðasti þjálfarinn

Susanne Moberg, aðal markaskorari sænska knattspyrnuliðsins Kristianstad, segir að Elísabet Gunnarsdóttir sé harðasti en jafnframt besti þjálfari sem hún hefur haft.   Ítarleg umfjöllun er í dag um Elísabetu og gengi Kristianstad á vef sænska knattspyrnusambandsins. Liðið tapaði í fyrra 10 fyrstu leikjum sínum í deildinni, á fyrsta ári Elísabetar sem þjálfara, en bjargaði sér síðan frá falli með góðum endaspretti.
meira...

01.06.10 - Hádegisfundur ÍSÍ - Alvarleiki, umfang og eðli kynferðisofbeldis

Næsti hádegisfundur ÍSÍ verður haldinn þriðjudaginn 8. júní nk. í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00 - 14.00.  Hann verður helmingi lengri en vant er, eða tvær klukkustundir í stað einnar.  Fundarefnið að þessu sinni er alvarleiki, umfang og eðli kynferðisofbeldis.  
meira...

29.05.10 - Ólafur Örn ráðinn þjálfari Grindavíkur

Ólafur Örn Bjarnason hefur verið ráðinn þjálfari Grindavíkur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Grindvíkingar sendu frá sér.

Ólafur gerir fjögurra ára samning og verður Milan Stefán Jankovic aðstoðarþjálfari hans. Ólafur kemur frá Brann þar sem hann hefur spilað síðustu sjö ár.
meira...

26.05.10 - Lúkas Kostic rekinn

Lúkas Kostic, þjálfari knattspyrnuliðs Grindavíkur, var rekinn í dag, en Grindvíkingar hafa byrjað leiktíðina ákaflega illa.

Grindvíkingar eru neðstir í deildinni með aðeins eitt stig, en þeir hafa gert eitt jafntefli og tapað þremur leikjum.  Í tilkynningu frá knattspyrnudeild Grindavíkur segir að stjórn deildarinnar hafi komist að þeirri niðurstöðu að Lúkas Kostic stigi til hliðar sem þjálfari liðsins.  Stjörnin þakkar Lúkasi fyrir gott samstarf og metnaðarfullt starf í þágu félagsins.

Ekki er enn ljóst hver tekur við af Lúkasi.

meira...

06.05.10 - Grasrótardagur UEFA - Berfætt í boltaleik

Þann 19. maí næstkomandi stendur UEFA (Knattspyrnusamband Evrópu) fyrir sérstökum Grasrótardegi (UEFA Grassroots Day).  Dagurinn 19. maí er ekki valinn af tilviljun, heldur er þessi dagur sérstaklega valinn til að tengja verkefnið úrslitaleik Meistaradeildar UEFA, sem fram fer laugardaginn 22. maí.  Með Grasrótardeginum er minnt á að afreksknattspyrna á hæsta þrepi getur ekki þrifist án heilbrigðrar grasrótar í knattspyrnuhreyfingunni. 
meira...

03.05.10 - Handbók leikja 2010 komin út

Handbók leikja 2010 er komin út, en hún inniheldur ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir aðildarfélög KSÍ.  Í Handbók leikja eru ábendingar og tilmæli til félaga um framkvæmd leikja, yfirlit yfir reglur og kröfur sem gerðar eru varðandi hina ýmsu þætti, eyðublöð og fleira. 
meira...

28.04.10 - Súpufundur KSÍ fer fram í hádeginu fimmtudaginn 6. maí

Næsti súpufundur KSÍ verður haldinn fimmtudaginn 6. maí. Að þessu sinni mun Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð, mæta á svæðið og flytja erindi um munntóbaksnotkun innan knattspyrnuhreyfingarinnar.
meira...

27.04.10 - Fyrsti fótboltinn framleiddur sérstaklega ætlaður konum

Nú hafa konur eignast sinn eiginn fótbolta. Boltinn er danskur og er þegar farið að nota hann í Danmörku í opinberum keppnum á vegum DBU. Þá eiga framleiðendur í viðræðum við FIFA um að nota beri boltann í keppnum á vegum sambandsins.
meira...

26.04.10 - Halldóra Vanda Sigurgeirsdóttir aðstoðarþjálfari Breiðabliks

Halldóra Vanda Sigurgeirsdóttir er komin aftur til Breiðabliks þar sem hún var þjálfari kvennaliðsins fyrir tveimur árum en nú verður hún aðstoðarþjálfari.
meira...

26.04.10 - Ráðstefna um störf íþróttaþjálfara

Föstudaginn 30.apríl næstkomandi standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttafræðasetur HÍ fyrir ráðstefnu með yfirskriftinni "Starf íþróttaþjálfara".
meira...

26.04.10 - Úlfar Hinriksson verður aðstoðarþjálfari hjá Breiðablik

Úlfar Hinriksson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Breiðabliks og verður því Ólafi Kristjánssyni þjálfara liðsins innan handar í sumar.

Úlfar tekur við starfinu af Arnari Grétarssyni sem hætti sem aðstoðarþjálfari og leikmaður liðsins til að taka við starfi íþróttastjóra hjá AEK í Grikklandi.

meira...

22.04.10 - Hvað þarf að vera í sjúkratöskunni

Margir knattspyrnuþjálfarar kannast við að vera komnir inn á völl til að huga að slösuðum leikmanni og opna sjúkratöskuna og uppgötva þá sér til skelfingar að nánast ekkert er í sjúkratöskunni.   
 
meira...

21.04.10 - Fyrirlestur um afreksþjálfum efnilegra leikmanna í Danmörku

Knattspyrnuþjálfararfélag Íslands og Knattspyrnusamband Íslands halda fyrirlestur í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 29. apríl kl. 17:00-18:30
meira...

21.04.10 - Kynningarfundur um meistaranám í íþróttafræði

Kynningarfundur um nýtt meistaranám  verður mánudaginn 26. apríl, kl. 16:00-17:00 í Háskólanum í Reykjavík  að  Menntavegi 1, Nauthólsvík, í stofu M 1.01 BELLATRIX (innst á ganginum til vinstri á fyrstu hæð).

meira...

15.04.10 - Styrktarþjálfun unglinga

Námskeiðinu sem vera átti laugardaginn 17. apríl hefur verið frestað til 24. apríl vegna erfiðleika í flugsamgöngum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. 

meira...

14.04.10 - Tveimur félögum veitt viðvörun vegna aðstoðarþjálfara

Á fundum leyfisráðs 16. og 23. mars voru teknar fyrir umsóknir félaga um þátttökuleyfi í Pepsi-deild karla og 1. deild karla.  Við leyfisveitingu samþykkti leyfisráðið að vísa fjórum málum til aga- og úrskurðarnefndar til afgreiðslu.  Nefndin hefur nú tekið málin fyrir og úrskurðað samkvæmt 8. grein leyfisreglugerðarinnar.

meira...

14.04.10 - Reglur KSÍ um endurmenntun

Knattspyrnuþjálfarar geta fengið allar upplýsingar um menntun sína og hvenær þjálfararéttindi renn út á heimasíðu KSÍ.

 

meira...

09.04.10 - Annar súpufundur KSÍ - Rætt var um spilafíkn

Annar súpufundur KSÍ fór fram í gær en þar mætti Ásgrímur Jörundsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá SÁÁ og hélt erindi um spilafíkn.  Ríflega 30 manns hlýddu á fróðlegan fyrirlestur Ásgríms og hér að neðan má sjá glærur frá fyrirlestrinum.

Glærur - Spilafíkn

Hér má sjá fyrirlesturinn á myndbandi

meira...

09.04.10 - Tímabundin störf hjá KSÍ í boði

Knattspyrnusamband Íslands auglýsir eftir tveimur starfsmönnum í tímabundin störf en um er að ræða átaksverkefni sem einungis er ætlað þeim sem eiga bótarétt. 

meira...

31.03.10 - Kristinn Guðbrandsson ráðinn aðstoðarþjálfari Fylkis

Kristinn Guðbrandsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks Fylkis í knattspyrnu næstu tvö tímabil, en hann var þjálfari hjá Víkingi Ólafsvík fyrri hluta síðasta tímabils.  Kristinn er knattspyrnuáhugamönnum að góðu kunnur en hann lék á árunum 1989-2001 með Keflavík og var aðstoðarþjálfari þar árin 2005-2007, ásamt því að hafa þjálfað 2. flokk félagsins um skeið.

meira...

30.03.10 - Súpufundur KSÍ fer fram í hádeginu fimmtudaginn 8. apríl

Næsti súpufundur KSÍ verður haldinn fimmtudaginn 8. apríl. Óhætt er að segja að súpufundir KSÍ hafi farið vel af stað en yfir 90 manns mættu á fyrsta fundinn. Líkt og á fyrsta fundinum verður fyrirkomulagið 30 mínútna fyrirlestur og svör við spurningum. Jafnframt mun KSÍ bjóða gestum upp á súpu og brauð á þessum fyrirlestri og því upplagt að skella sér í heimsókn til KSÍ, hlýða á áhugavert erindi og fá sér hádegismat í leiðinni.

meira...

29.03.10 - KSÍ V þjálfaranámskeið haldið 23. - 25. apríl

Helgina 23.-25. apríl mun Knattspyrnusamband Íslands standa fyrir 5. stigs þjálfaranámskeiði í höfuðstöðvum KSÍ. Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir þeir þjálfarar sem eru með KSÍ B þjálfaragráðu og fengu a.m.k. 70 stig í KSÍ B prófinu (UEFA B prófinu). Námskeiðið er upphafið af KSÍ A (UEFA A) þjálfaragráðu.

meira...

29.03.10 - Grasrótarstarf KSÍ fær fjórðu stjörnuna

Framkvæmdastjórn UEFA tilkynnti á dögunum að Grasrótarstarf KSÍ hefði fengið úthlutað fjörðu stjörnunni en stjarnan er gefin m.a. fyrir átaksverkefni í knattspyrnu fyrir fatlaða.  KSÍ var samþykkt inn í Grasrótarsáttmála UEFA árið 2008 og var þá 30. þjóðin til að ná inn í þann sáttmála.  Unnið er eftir stjörnukerfi og byrjar hver þjóð með eina stjörnu við inngöngu. 

Grasrótarstarf getur verið af margvíslegum toga og eru það aðildarfélög KSÍ sem bera þungann af þessu starfi með margvíslegum hætti í hreyfingunni

meira...

24.03.10 - Gunnar Rafn í þjálfarateymi Selfoss

Selfyssingar gengu á dögunum frá ráðningarsamning við Gunnar Rafn Borgþórsson sem þjálfara Selfossliðsins í knattspyrnu. 
Gunnar mun þjálfa liðið með Guðmundi Benediktssyni og þeim til aðstoðar verður áfram Ómar Valdimarsson.
meira...

24.03.10 - Andrés Ellert ráðinn þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar

Andrés Ellert Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar út þetta tímabil og hefur störf strax í þessari viku, en Þorkell Máni Pétursson hafði hætt með liðið í síðustu viku vegna anna á öðrum vettvangi.

 
meira...

23.03.10 - Átta þátttökuleyfi veitt á fundi leyfisráðs

Leyfisráð KSÍ tók í dag fyrir leyfisumsóknir 8 félaga, þriggja félaga úr 1. deild karla og fimm félaga úr Pepsi-deild karla.  Félögin átta fengu öll þátttökuleyfi og þar með hafa öll félögin 24 sem undirgangast kerfið samþykkt þátttökuleyfi í höndunum.  Þremur félögum er þó veitt þátttökuleyfi með ákveðnum fyrirvörum um mannvirkjamál og tvö félög verða beitt viðurlögum (dagsektir) vegna dráttar á skilum á fjárhagslegum gögnum.

meira...

19.03.10 - 273 félagsmenn hafa greitt félagsgjaldið

Eins og sagt var frá á greiðsluseðlinum fyrir félagsgjaldi KÞÍ fyrir árið 2009 sem félagsmönnum KÞÍ barst í lok júlí á síðasta ári, þá munu þeir sem greiða félagsgjald KÞÍ fyrir árið 2009 fá eitt eintak af tímaritinu Success in Soccer og prjónahúfu með meki KÞÍ á.  Í lok september var sent á alla félagsmenn sem höfðu greitt félagsgjaldið þá og í dag var sent á alla félagsmenn sem greitt hafa eftir að síðast var sent út.  KÞÍ skorar á þá félagsmenn sína sem enn hafa ekki greitt félagsgjaldið að gera það hið fyrsta og styðja þannig við öflugt starf félagsins.
meira...

18.03.10 - Þorkell Máni hættur með Stjörnuna - Þorlákur tekur tímabundið við

Þorkell Máni Pétursson er hættur þjálfun kvennaliðs Stjörnunnar en þetta staðfesti Einar Páll Tamini formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá félaginu í gær. Hann sagði Þorkel Mána taka þessa ákvörðun til að einbeita sér að starfi sínu við tónlist.  Þorlákur Árnason yfirþjálfari yngri flokka hjá Stjörnunni mun annast þjálfun liðsins þar til nýr þjálfari hefur verið ráðinn.


 
meira...

17.03.10 - Fylkir fær keppnisleyfi þrátt fyrir að menntun aðstoðarþjálfara meistaraflokks sé ekki uppfyllt

Fyrsti fundur leyfisráðs í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2010 fór fram í s.l. þriðjudag, og voru teknar fyrir umsóknir 24 félaga um þátttökuleyfi - 12 i Pepsi-deild og 12 í 1. deild.  Gefin voru út þátttökuleyfi til handa 16 félögum.  Eins og fram kemur í frétt hér fyrir neðan sendi KÞÍ bréf til leyfisráðs KSÍ þar sem KÞÍ vildi vekja athygli leyfisráðs á því að nokkurrar óánægju gætir á meðal þjálfara í efstu deildum karla og hjá þjálfurum með tilskilin réttindi til þess að þjálfa í efstu deildum.  

meira...

16.03.10 - Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands sendi bréf til Leyfisráðs KSÍ

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands sendi bréf til Leyfisráðs KSÍ þar sem KÞÍ vildi vekja athygli leyfisráðs á því að nokkurrar óánægju gætir á meðal þjálfara í efstu deildum karla og hjá þjálfurum með tilskilin réttindi til þess að þjálfa í efstu deildum.  
 
 
 
meira...

15.03.10 - Teiður Þórðarson - þjálfarinn sem aldrei hættir

Teitur er Íslendingurinn og þjálfarinn sem hefur níu líf. Eftir mörg ár sem þjálfari í efstu deildum Noregs og Íslands , tók hann þeirri áskorun að flytja til BNA og taka við þjálfun NASL félagsins Vancouver Whitecaps FC fyrir brátt þremur árum síðan. Teiti líkar vel við knattspyrnuhefðina í Bandaríkjunum.  Viðtal við Teit er í nýjasta tölublaði norska knattspyrnuþjálfarafélagsins og birtist hér með góðfúslegu leyfi Teits og norska knattspyrnuþjálfarfélagsins í lauslegri þýðingu Guðbjarts Jónssonar.
meira...

14.03.10 - Þorleifur tekur við Fjölni

Fjölnir hefur tilkynnt að búið sé að ráða þjálfara sem mun sjá um kvennalið félagsins næsta sumar.  Það er Þorleifur Óskarsson sem tekur við liðinu en hann var síðast þjálfari hjá Þrótti er hann stýrði liðinu ásamt Kristrúnu Lilju Daðadóttur eiginkonu sinni. 

 
meira...

13.03.10 - Brynjar og Mikael þjálfa ÍH saman

Brynjar Þór Gestsson og Mikael Nikulásson munu þjálfa lið ÍH í sameiningu í annarri deild karla í sumar.  Mikael hefur stýrt ÍH undanfarin ár en hann hefur núna fengið Brynjar sér við hlið.  Brynjar hefur á ferli sínum þjálfað Álftanes, Huginn og ÍR en undanfarið hefur hann þjálfað háskólalið í Bandaríkjunum.
 
meira...

04.03.10 - Árveknisátak gegn krabbameini: Mottu-mars

KSÍ hvetur landsmenn alla til að taka þátt í árveknisátaki Krabbameinsfélagsins - "Karlmenn og krabbamein:  Mottu-mars".  Þátttakan er einföld, láttu þér vaxa yfirvaraskegg í mars.  Nokkrir leikmenn úr Pepsi-deild karla munu etja kappi við leikmenn úr öðrum hópíþróttum og taka þannig þátt í að vekja athygli á verkefninu. 
meira...

26.02.10 - Ólafur Ingi Stígsson aðstoðar Óla Þórðar hjá Fylki

Ólafur Ingi Stígsson fyrrverandi leikmaður Fylkis hefur orðið við beiðni Meistarflokksráðs Fylkis um að aðstoða Ólaf Þórðarson tímabundið við þjálfun meistarflokks félagsins, eða þar til gengið verður formlega frá ráðningu aðstoðarþjálfara. 

Ólafur þekkir vel til liðsins en hann var valinn besti leikmaður liðsins á síðasta tímabili.  Hann er einnig leikjahæsti leikmaður Fylkis í efstu deild.

meira...

19.02.10 - KSÍ B próf fer fram 6. mars

Laugardaginn 6. mars stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er opið öllum þjálfurum sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).  Prófað er úr öllu námsefni KSÍ I, II, III og IV og úr nýjustu útgáfu af knattspyrnulögunum. Engin hjálpargögn eru leyfð í prófinu. Ef þjálfurum sem hyggjast taka prófið vantar einhver gögn, vinsamlegast hafið samband við undirritaðan.

meira...

18.02.10 - Frábær mæting á fyrsta súpufund KSÍ

Frábær mæting var á fyrsta súpufund KSÍ sem haldinn var í hádeginu í dag í höfuðstöðvum KSÍ.  Á þessum fyrsta fundi kynnti Guðjón Örn Helgason meistaraprófsritgerð sína sem fjallar um hollustu og tryggð knattspyrnumanna gagnvart félagi sínu.  Um 90 manns mættu og hlýddu á erindi Guðjóns.
meira...

14.02.10 - Guðni Rúnar Helgason ráðinn aðstoðarþjálfari hjá Völsungi

Guðni Rúnar hefur undanfarið tvö ár leikið með Stjörnunni en hann neyddist til að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla í desember síðastliðnum.   Guðni Rúnar mun hann aðstoða Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfara Völsungs en Húsvíkingar leika að nýju í annarri deildinni í sumar eftir að þeir unnu þriðju deildina í fyrra.   Guðni Rúnar þekkir til með Völsungi eftir að hafa leikið með liðinu í nokkur ár á sínum tíma en hann var síðast með liðinu árið 1998.
meira...

13.02.10 - Stytta til minningar um Albert Guðmundsson afhjúpuð

Í kvöld var afhjúpuð stytta til minningar um Albert Guðmundsson en styttan stendur fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ.  Það var Albert Guðmundsson, langafabarn Alberts, sem afhjúpaði styttuna.  Eins og öllum knattspyrnuþjálfurum er kunnugt var KÞÍ stofnað 13. nóvember 1970 fyrir tilstuðlan Alberts Guðmundssonar, sem þá var formaður KSÍ.  Við þetta tilefni flutti Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, stutta tölu og sagði meðal annars:
meira...

12.02.10 - Fyrsti súpufundur KSÍ fer fram í hádeginu fimmtudaginn 18. febrúar

KSÍ hefur ákveðið að fara af stað með fræðslufundi í hádeginu einu sinni í mánuði.  Fræðslufundirnir verða í formi 30 mínútna fyrirlesturs um ólík efni hverju sinni og svo svör við spurningum.  KSÍ mun jafnframt bjóða gestum upp á súpu og brauð á þessum fyrirlestrum og því upplagt að skella sér í heimsókn til KSÍ, hlýða á áhugavert erindi og fá sér hádegismat í leiðinni.   
meira...

02.02.10 - Þjálfarar til Hollands

Í dag halda ellefu yngri flokka þjálfarar héðan til Hollands en þar munu þeir kynna sér barna- og unglingaþjálfun.  Ferðin er hluti af verkefni UEFA en ásamt þjálfurum frá Íslandi verða þjálfarar frá Austurríki og Svíþjóð með í ferðinni.

Stutt er síðan að álíka verkefni var haldið hér á landi á vegum UEFA en þá komu fulltrúar frá þremur þjóðum og kynntu sér uppbyggingu kvennaknattspyrnu hér á landi.

meira...

01.02.10 - Fjórir íslenskir þjálfara á leið til Englands

KÞÍ tókst að fá nokkur sæti í Þjálfaraferð Norska Þjálfarafélagsins þar sem heimsótt verða ensku úrvalsdeildarliðin Manchester United, Manchester City, Liverpool og Everton.  Farið verður helgina 18-21 febrúar næstkomandi. KÞÍ auglýsti eftir áhugasömum þjálfurum sem tilbúnir væru að fara í ferðina og sóttu nokkrir um.  Því miður komust ekki allir sem um sóttu en fjórir þjálfarar frá Íslandi fara á vegum norska knattspyrnuþjálfarafélagsins í ferðin og munu skila skýrslu sem birt verður hér fljótlega að ferð lokinni.  Þeir sem fara eru Gunnlaugur Kárason, Hannes Jón Jónsson, Vésteinn Gauti Hauksson og Þórarinn Einar Engilbertsson.
meira...

27.01.10 - Íslensk kvennaknattspyrna kynnt á UEFA ráðstefnu

Í gærkvöldi hófst hér á landi ráðstefna á vegum UEFA þar sem íslensk kvennaknattspyrna er kynnt fyrir hópum frá Austurríki, Færeyjum og Portúgal.  Ráðstefnan er hluti af verkefni UEFA þar sem kallast "UEFA Study Group Scheme" en þar miðla þjóðir innan UEFA reynslu sinni til annarra aðildarþjóða. 

Á ráðstefnunni eru ýmsir fyrirlestrar á dagskrá sem og að rástefnugestir heimsækja m.a. Breiðablik og Val og fylgjast með æfingum hjá kvennaliðum félaganna.  Ráðstefnunni lýkur svo á morgun.

meira...

21.01.10 - Þjálfurum býðst að fylgjast með námskeiðum þjálfara Arsenal

Eins og flestir vita þá verður Arsenal soccer school með námskeið hjá KA á Akureyri dagana 14. til 18. júní í sumar.  Alls munu sex þjálfarar koma frá skólanum.  Nú býðst þjálfurum á Íslandi gott tækifæri til þess að fylgjast með þessum þjáfurum við störf og læra af þeim.   Þetta er frábært tækifæri til þess að endurmennta sig og fá nýjar og ferskar hugmyndir.

Þeir sem áhuga hafa á að vera aðstoðarmenn þessara þjálfara á meðan á námskeiðinu stendur vinsamlegast hafið samband sem fyrst við Pétur í síma 861-2884 eða e-mail petur@port.is.

 
meira...

21.01.10 - Guðbjartur tekur við kvennaliði ÍR

Guðbjartur Halldór Ólafsson hefur verið ráðinn sem þjálfari hjá meistaraflokki kvenna ÍR í knattspyrnu og tók hann til starfa í byrjun janúar.  Guðbjartur kemur frá Höfn í Hornafirði og var leikmaður með Sindra, Aftureldingu og Njarðvík.  Guðbjartur er við nám í íþróttafræðum við Háskóla Íslands.

Guðbjartur tekur við starfinu af portúgölsku landsliðskonunni Liliana Martins sem spilaði einnig með liðinu á síðustu leiktíð en hefur gengið til liðs við FH.

 
meira...

12.01.10 - Þrjú félög fengu grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA fyrir árið 2009

Í dag voru afhent grasrótarverðlaun KSÍ og UEFA og var athöfnin haldin í höfuðstöðvum KSÍ.  Þrjú félög fengu viðurkenningar að þessu sinni en veittar eru viðurkenningar í nokkrum grasrótarflokkum.  Breiðablik, Fjarðabyggð/Leiknir og KR fengu grasrótarviðurkenningar að þessu sinni.

meira...

12.01.10 - KSÍ III þjálfaranámskeið um næstu helgi

Helgina 15.-17. janúar heldur Knattspyrnusamband Íslands 3. stigs þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. KSÍ hélt slíkt námskeið einnig um síðustu helgi þar sem Lars Lagerback, fyrrverandi A-landsliðsþjálfari Svíþjóðar, heimsótti landann og tók út námskeiðið en Lagerback er meðlimur í JIRA-starfshópnum sem er hópur á vegum UEFA og hefur yfirumsjón með þjálfarmenntun í Evrópu. Myndin hér að neðan var tekin að námskeiðinu loknu.
meira...

12.01.10 - Grasrótardagur UEFA verður 19. maí

Framkvæmdastjórn UEFA hefur ákveðið að sérstakur grasrótardagur UEFA verði haldinn þann 19. maí næstkomandi.  UEFA mun þá vekja athygli á grasrótarstarfi í aðildarlöndum sínum í samstarfi við aðildarþjóðirnar og nota til þess "Meistaradeildarvikuna" en leikið verður til úrslita í Meistardeild kvenna 20. maí og Meistaradeild karla 22. maí og fara báðir leikirnir fram í Madrid.

meira...

07.01.10 - Þjálfaraferð til Englands

KÞÍ hefur tekist að fá nokkur sæti í Þjálfaraferð Norska Þjálfarafélagsins þar sem heimsótt verða ensku úrvalsdeildarliðin Manchester United, Manchester City, Liverpool og Everton.  Farið verður helgina 18-21 febrúar næstkomandi. Ekki er komið endanlegt verð á ferðina en gera má ráð fyrir verði á bilinu 130 þúsund þar sem innifalið er hluti af flugi, 3stjörnu hótel, The Britannia, námskeiðsgögn og leiðbeinendur, norskir og enskir, miði á leik Everton - Manchester United.
meira...

06.01.10 - KSÍ I þjálfaranámsskeið á Akureyri

Helgina 15.-17. janúar mun Knattspyrnusamband Íslands halda KSÍ I þjálfaranámskeið á Akureyri. Kennarar á námskeiðinu eru Freyr Sverrisson og Jóhannes Valgeirsson. Drög að dagskrá námskeiðsins má sjá hér að neðan. Námskeiðið fer fram í félagsheimili Þórs en verklegi hluti námskeiðsins fer fram í Boganum.
meira...

29.12.09 - Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari Kristianstad DFF heldur fyrirlestur 3. janúar í boði KÞÍ

Sunnudaginn 3. janúar kl 16:00 verður Elísabet Gunnarsdóttir þjálfari sænska efstudeildarliðsins Kristianstad DFF með opinn fyrirlestur um reynslu sína í Svíþjóð í fræðslusetri KSÍ í Laugardal.
 
En eins og flestir þekkja þá tók Elísabet við Kristianstad DFF á haustmánuðum 2008.  Elísabet hélt liðinu í efstu deild á sínu fyrsta tímabili.  Í kjölfarið bauð félagið henni tveggja ára framlengingu á samningi sínum sem hún samþykkti fyrr í mánuðinum.  Mun Elísabet deila reynslu sinni með íslenskum þjálfurum og öðrum áhugasömum.
                                        
 
 
meira...

28.12.09 - Siðareglur KSÍ sem taka gildi 1. janúar næstkomandi

Á stjórnarfundi KSÍ þann 18. desember síðastliðinn voru samþykktar siðareglur KSÍ og taka þær gildi þann 1. janúar næstkomandi.  Hér að neðan má sjá þessar siðareglur.
 
meira...

24.12.09 - Gleðileg jól, gott og farsælt komandi knattspyrnu ár

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands sendir öllum knattspyrnuþjálfurum og öðrum velgjörðarmönnum KÞÍ, sínar bestu óskir um gleðileg jól, með ósk um gott og farsælt komandi knattspyrnu ár.
meira...

22.12.09 - Reglugerðarbreytingar samþykktar af stjórn KSÍ

Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum þann 18. desember nokkrar breytingar á reglugerðum KSÍ.  Á meðal breytinga sem samþykktar voru er ný reglugerð um menntun knattspyrnuþjálfara og má sjá hana hér fyrir neðan.  

 

Reglugerð KSÍ um menntun þjálfara 

meira...

22.12.09 - Stjórnin skiptir með sér verkum

Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar KÞÍ skipti stjórnin með sér verkum fyrir næsta starfsár. Aðalstjórn mun verða eins skipuð og á síðasta starfsári, Sigurður Þórir Þorsteinsson er formaður, Kristján Guðmundsson varaformaður, Ómar Jóhannsson gjaldkeri, Úlfar Hinriksson ritari og Arnar Bill Gunnarsson spjaldskrárritari. Í varastjórn eru Þórir Bergsson og Theódór Sveinjónsson, sem kom nýr inn í stjórn KÞÍ á aðalfundinum í stað Jóhanns Gunnarssonar sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa.  KÞÍ þakkar Jóhanni fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar.
meira...

21.12.09 - Þjálfaranámskeið KSÍ í janúar

Knattspyrnusamband Íslands mun halda tvö KSÍ III þjálfaranámskeið í janúar. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 8.-10. janúar og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 15.-17. janúar.  Námskeiðin fara bæði fram á höfuðborgarsvæðinu.  Dagskrá fyrra námskeiðsins er hér að neðan en dagskrá síðara námskeiðsins er enn í vinnslu og verður auglýst síðar.

meira...

14.12.09 - Eiður Smári og Þóra knattspyrnufólk ársins 2009

Leikmannaval KSÍ hefur valið Eið Smára Guðjohnsen og Þóru B. Helgadóttur knattspyrnufólk ársins 2009.  Þetta er í sjötta skiptið sem að knattspyrnufólk ársins er sérstaklega útnefnt af KSÍ.  Það eru fjölmargir aðilar,  m.a. fyrrverandi landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn í knattspyrnuhreyfingunni, er velja knattspyrnufólk ársins.   

meira...

14.12.09 - Umsóknir á UEFA Pro þjálfaranámskeið í Englandi

Líkt og í fyrra býðst þjálfurum hér á landi að senda inn umsókn á UEFA Pro þjálfaranámskeið í Englandi. Pro þjálfaragráðan er viðurkennd í öllum löndum Evrópu, er æðsta stig þjálfaramenntunar sem UEFA samþykkir og veitir réttindi til að þjálfa öll lið í öllum deildum í Evrópu. KSÍ er heimilt að senda tvær umsóknir til Englands en Enska knattspyrnusambandið mun velja inn á námskeiðið um miðjan janúar.

meira...

03.12.09 - Kristján og Þórir fóru á ráðstefnu norska knattspyrnuþjálfarafélagsins

Kristján Guðmundsson varaformaður og Þórir Bergsson meðstjórnandi í stjórn KÞÍ fóru á árlega ráðstefnu norska knattspyrnuþjálfarafélagsins sem haldin var í Osló 6. - 8. nóvember s.l. í tengslum við úrslitaleikina í bikarkeppni kvenna og karla þar í landi.  Gögn frá ráðstefnunni má sjá hér neðar.
  
 
 
meira...

01.12.09 - Hallur Ásgeirsson ráðinn þjálfari hjá Þrótti Vogum

Hallur Kristján Ásgeirsson hefur verið ráðinn spilandi þjálfari 3. deildar liðs Þróttar Vogum og skrifaði undir eins árs samning við félagið í Vogunum í gærkvöldi.  Hallur, sem er 31 árs gamall, hefur spilað undanfarin ár með ÍH. Óhætt er að segja að Hallur hafi komið víða við en félagaskipti hans í Þrótt verða 25.félagaskipti hans á ferlinum.

meira...

25.11.09 - Vilt þú fara á UEFA Pro námskeið?

Líkt og í fyrra býðst þjálfurum hér á landi að senda inn umsókn á UEFA Pro þjálfaranámskeið í Englandi. Pro þjálfaragráðan er viðurkennd í öllum löndum Evrópu, er æðsta stig þjálfaramenntunar sem UEFA samþykkir og veitir réttindi til að þjálfa öll lið í öllum deildum í Evrópu. KSÍ er heimilt að senda tvær umsóknir til Englands en enska knattspyrnusambandið mun velja inn á námskeiðið um miðjan janúar.
meira...

23.11.09 - Kristján þjálfar HB í Færeyjum

Knattspyrnuþjálfarinn Kristján Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari færeyska meistaraliðsins HB. Tilkynnt var um ráðningu Kristjáns á fréttamannafundi hjá HB nú í morgun.
meira...

21.11.09 - Heimir og Freyr þjálfarar ársins í efstu deildum karla og kvenna

 
Á aðalfundi Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands útnefndi félagið þjálfara ársins á efstu deildum karla og kvenna. Heimir Guðjónsson þjálfari Íslandsmeistara FH var útnefndur þjálfari ársins í efstu deild karla fyrir árið 2009 og Freyr Alexandersson þjálfari Íslandsmeistara Vals voru útnefndir þjálfari ársins í efstu deild kvenna fyrir árið 2009. 
meira...

21.11.09 - Samþykkt að hækka félagsgjaldið

Á aðalfundinum lagði stjórn KÞÍ til að árgjald félagsins yrði hækkað í þrjú þúsund og fimm hundruð krónur og var það samþykkt.  Eins og áður er stefnt er að því að hafa eitthvað innifalið í árgjaldinu, en hvað það verður kemur í ljós næsta sumar. Félagsmenn hafa lýst yfir mikilli ánægju með gjafirnar sem fylgt hafa félagsgjaldinu undanfarin ár og stefnir stjórn KÞÍ á að hafa sama hátt á áfram.
meira...

21.11.09 - Skoðunarmenn reikninga endurkjörnir

Þeir Halldór Örn Þorsteinsson og Birkir Sveinsson sem verið hafa skoðunarmenn reikninga KÞÍ mörg undanfarin ár voru endurkjörnir sem skoðunarmenn reikninga KÞÍ fyrir næsta starfsár.
meira...

21.11.09 - Viðurkenning fyrir vel unnin störf í þjálfun yngri flokka

 
Magnea Helga Magnúsdóttir, Ólafur Jósefsson, Pétur Ólafsson og Þorsteinn Hreiðar Halldórsson hlutu viðurkenningu fyrir vel unnin störf við þjálfun yngri flokka á aðalfundi KÞÍ. Öll hafa þau lagt mikinn metnað í þjálfunina og verið knattspyrnuþjálfurum til sóma við störf sín.
 
meira...

21.11.09 - Fundargerð aðalfundar KÞÍ

Sigurður Þórir býður fundarmenn velkomna og stingur upp á Bjarna Jóhannssyni sem fundarstjóra og Arnari Bill Gunnarssyni sem fundarritara. Samþykkt með dynjandi lófaklappi.
meira...

21.11.09 - Skýrsla stjórnar Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands (KÞÍ) starfsárið 2008 – 2009

Á síðasta aðalfundi sem haldinn var 27. nóvember 2008 í fræðslusetri KSÍ var kosin stjórn sem skipti með sér verkum á fyrsta stjórnarfundinum á starfsárinu. Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður, Kristján Guðmundsson varaformaður, Úlfar Hinriksson ritari, Ómar Jóhannsson gjaldkeri og Arnar Bill Gunnarsson spjaldskrárritari. Í varastjórn voru kosnir Þórir Bergsson og Jóhann Gunnarsson.
meira...

21.11.09 - Fámennur aðalfundur

Aðalfundur KÞÍ var haldinn 20. nóvember s.l. í Fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli. Fundurinn var fámennur en umræður talsverðar, en um tuttugu félagsmenn KÞÍ mættu á fundinn.  Að venjulegum aðalfundar störfum var boðið upp á léttar veitingar.
meira...

19.11.09 - Guðrún Jóna tekur við KR

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir verður aðalþjálfari meistaraflokks kvenna. Hún hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR.
meira...

18.11.09 - Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands

Aðalfundur Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands verður haldinn í fræðslusetri KSÍ á Laugardalsvelli, föstudaginn 20. nóvember n.k. klukkan 20:00.
meira...

13.11.09 - Ásgrímur Helgi þjálfar Aftureldingu

Ásgrímur Helgi Einarsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Aftureldingar í Pepsi-deildinni. Þetta var tilkynnt fyrir fáeinum mínútum á fundi með leikmönnum. Hann tekur við starfinu af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur sem fékk samningi sinum við Mosfellinga rift eftir eins árs starf.
meira...

09.11.09 - KSÍ I þjálfaranámskeið og unglingadómaranámskeið í Vestmannaeyjum

Helgina 20. - 22. nóvember mun Knattspyrnusamband Íslands halda 1. stigs þjálfaranámskeið í Vestmannaeyjum. Auk þess mun KSÍ halda unglingadómaranámskeið á sunnudeginum. Bæði þessi námskeið eru opin öllum sem áhuga hafa.

meira...

05.11.09 - UEFA A endurmenntun þriðjudaginn 10. nóvember

Þriðjudaginn 10. nóvember mun KSÍ bjóða upp á UEFA A endurmenntun. Hingað til lands koma þeir John Peacock og Dick Bate en báðir starfa þeir hjá enska knattspyrnusambandinu. Námskeiðið hefst kl. 17:00 og verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ, 3. hæð.
meira...

02.11.09 - Þjálfari meistaraliðs bandarísku atvinnumannadeildar kvenna heldur fyrirlestur í Smáranum föstudaginn 6. nóvember

Pauliina Miettinen er verðandi þjálfari Sky Blue frá New Jersey.  Hún mun stjórna opinni æfingu í Fífunni föstudaginn 6. nóvember klukkan 18.00-19.00. Strax í kjölfarið, eða kl. 19.15-20.30 heldur hún fyrirlestur um þjálfun í kvennaknattspyrnu í Smáranum.  Æfingin og fyrirlesturinn er öllum opin og ókeypis er fyrir félagsmenn KÞÍ en aðrir borga 500 krónur.
meira...

01.11.09 - Kristján og Þórir fara á bikarráðstefnu norska knattspyrnuþjálfarafélagsins

Kristján Guðmundsson varaformaður og Þórir Bergsson meðstjórnandi í stjórn KÞÍ fara á árlega ráðstefnu norska knattspyrnuþjálfarafélagsins sem haldin er í Osló 6. - 8. nóvember í tengslum við úrslitaleikina í bikarkeppni kvenna og karla þar í landi.  Þeir félagar munu skila skýrslu í lok ferðar sem birtast mun hér á heimasíðu KÞÍ.
meira...

30.10.09 - Knattspyrnuskólar Gróttu, HK og Víkings fá gæðavottorð UEFA og KSÍ

Síðastliðið vor ákvað útbreiðslunefnd KSÍ að bjóða knattspyrnuskólum félaga upp á úttekt á starfsemi skólanna en það er hluti af grasrótarsáttmála UEFA, sem Knattspyrnusamband Íslands er aðili af. Félög gátu sótt um slíka úttekt sem síðar var framkvæmd með heimsókn starfsmanna útbreiðslunefndar í knattspyrnuskólann. Í úttektinni var farið yfir aðstöðu og áhöld, öryggi barna, gæðastarf knattspyrnuskólans, menntun og fjölda starfsmanna og aðra þætti.

meira...

29.10.09 - Steinar Ingimundarson þjálfar kvennalið Keflavíkur

Keflavík hefur ráðið Steinar Ingimundarson sem nýjan þjálfara kvennaliðs félagsins en hann tekur við starfinu af Elvari Grétarssyni sem þjálfaði liðið síðasta árið.   Steinar gerði samning við Keflavík til eins árs. Skrifað var undir samninginn í K-húsinu í gærkvöldi.
meira...

29.10.09 - Ráðstefna AEFCA í Minsk í Hvíta Rússlandi

Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður KÞÍ og Ómar Jóhannsson gjaldkeri KÞÍ fóru á árlega ráðstefnu Evrópska knattspyrnuþjálfarafélagsins ( AEFCA ) sem haldin var í Minsk í Hvíta Rússlandi 24. - 28. október. 
meira...

28.10.09 - Jón Páll Pálmason tekur við Hetti

Jón Páll Pálmason hefur verið ráðinn þjálfari 2. deildar liðs Hattar á Egilsstöðum og skrifaði undir samning við félagið í dag.  Jón Páll samdi við Hött til eins árs.  Jón Páll sem er 27 ára gamall hefur þjálfað alla yngri flokka FH undanfarin ár en hann hóf þjálfaraferil sinn haustið 2003.
meira...

22.10.09 - Fræðst um knattspyrnu kvenna í Englandi

Á dögunum fór 11 manna hópur frá Íslandi til Englands í þeim tilgangi að að kynna sér knattspyrnu kvenna þar í landi.  Þessi ferð er hluti af stóru fræðsluverkefni UEFA sem KSÍ er aðili að og snýst um að knattspyrnusamböndin geti fræðst um starfsemi og uppbyggingu knattpyrnunnar hjá hvoru öðru.

meira...

22.10.09 - Adólf Ingvi þjálfar Árborg áfram

Adólf Ingvi Bragason mun áfram þjálfa 3. deildarlið Knattspyrnufélags Árborgar og skrifaði hann undir samning þess efnis á Selfossi í gærkvöldi.
meira...

21.10.09 - KSÍ IV þjálfaranámskeið 6.-8. nóvember

KSÍ IV þjálfaranámskeið verður haldið helgina 6.-8. nóvember. Dagskrá námskeiðsins er í vinnslu og verður birt síðar.  Bóklegi hluti námskeiðsins fer fram í höfuðstöðvum KSÍ og verklegi þátturinn í Kórnum í Kópavogi.

meira...

20.10.09 - Ásmundur áfram með Gróttu

Knattspyrnudeild Gróttu hefur samið við Ásmund Haraldsson um áframhaldandi þjálfun á meistaraflokki Gróttu í karlaflokki. Undir stjórn Ásmundar vann Grótta 2. deild karla í sumar og leikur lið félagsins í fyrsta sinn í næst efstu deild á næsta keppnistímabili.

meira...

19.10.09 - KSÍ II þjálfaranámskeið á næstu vikum - Hefst næstu helgi

Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 23.-25. október og hins vegar 30. október-1. nóvember. Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa KSÍ I þjálfararéttindi.

meira...

17.10.09 - Sigurður Halldórsson þjálfar Tindastól

Sigurður Halldórsson hefur verið ráðinn þjálfari m.fl. og 2.fl. karla hjá Tindastóli.  Sigurður eða Siggi Donna eins og hann er kallaður er í hópi reynslumestu þjálfara landsins er ferill hans með m.fl. og 2. fl. nær yfir 22 ár.
meira...
Afturelding

16.10.09 - Izudin Daði Dervic tekur við Aftureldingu

Þjálfaði síðast Hauka sumarið 2005

Izudin Daði Dervic hefur verið ráðinn þjálfari Aftureldingar en skrifað var undir samning þess efnis nú síðdegis.  Dervic er að snúa aftur í fótboltann en hann þjálfaði Hauka síðast sumarið 2005 er liðið endaði í þriðja neðsta sæti 1. deildar.
meira...

16.10.09 - Jakob Már Jónharðsson ráðinn þjálfari hjá Víði Garði

Jakob Már Jónharðsson verður næsti þjálfari Víðis frá Garði en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.  Jakob hefur undanfarið tvö ár þjálfað Þrótt Vogum en hann er hættur þar og mun fljótlega skrifa undir samning hjá 2.deildarliði Víðis.
meira...

16.10.09 - Alfreð Elías Jóhannsson tekur við BÍ/Bolungarvík

Alfreð Elías Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá BÍ/Bolungarvík en skrifað var undir þriggja ára samning þess efnis í hádeginu.  Alfreð, sem er 33 ára, mun einnig spila með BÍ/Bolungarvík en hann tekur við liðinu af Dragan Kazic.
meira...

16.10.09 - Stjórnarmenn KÞÍ heimsóttu þátttakendur á KSÍ 1

Arnar Bill Gunnarsson spjaldskrárritari KÞÍ og Þórir Bergsson meðstjórnandi KÞÍ  heimsóttu þátttakendur á KSI 1 námskeiði í fræðslusetri KSÍ í dag.  Þeir félagar kynntu KÞÍ fyrir þátttakendum á námskeiðinu og tilkynntu þeim að stjórn KÞÍ hefði ákveðið fyrir stuttu að gera þau að félagsmönnum KÞÍ  með því að félagsgjaldið þeirra væri frítt fyrsta árið. 
meira...

15.10.09 - Gunnar áfram hjá GRV

Gunnar Magnús Jónsson þjálfar áfram kvennalið GRV næstu tvö árin en skrifað var undir samning í Grindavík í gærkvöldi. Gunnar Magnús hefur stýrt GRV undanfarin tvö ár með góðum árangri. Hann kom liðinu upp í úrvalsdeild í fyrra og undir hans stjórn varð GRV í 7. sæti  Pepsi-deildarinnar í sumar. 
meira...

15.10.09 - Helgi Bogason heldur áfram sem þjálfari Njarðvíkur

Helgi Bogason skrifaði í gærkvöldi undir nýjan samning við Njarðvik og því mun hann halda áfram að stýra liðinu á næstu leiktíð.  Helgi tók við Njarðvík í lok júlí síðastliðnum og hjálpaði liðinu að komast upp í fyrstu deild eftir harða samkeppni við Reyni Sandgerði.
meira...

09.10.09 - Stjórnarmenn KÞÍ heimsóttu þátttakendur á KSÍ 1

Ómar Jóhannsson gjaldkeri KÞÍ og Þórir Bergsson meðstjórnandi KÞÍ  heimsóttu þátttakendur á KSI 1 námskeiði í fræðslusetri KSÍ í dag.  Þeir félagar kynntu KÞÍ fyrir þátttakendum á námskeiðinu og tilkynntu þeim að stjórn KÞÍ hefði ákveðið fyrir stuttu að gera þau að félagsmönnum KÞÍ  með því að félagsgjaldið þeirra væri frítt fyrsta árið. 
meira...

09.10.09 - Helena tekur við Selfossi

Helena Ólafsdóttir var í dag ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 1. deild kvenna og samdi hún við félagið til næstu tveggja ára.  Helena þjálfaði síðast lið KR en hún hætti hjá félaginu síðastliðið haust og hefur ekki komið að þjálfun síðan.

meira...

08.10.09 - Sigurður Þórir og Ómar fara til Minsk á ráðstefnu AEFCA

Sigurður Þórir Þorsteinsson og Ómar Jóhannsson gjaldkeri KÞÍ fara á árlega ráðstefnu Evrópska knattspyrnuþjálfarafélagsins ( AEFCA ) sem haldin verður í Minsk í Hvíta Rúsllandi 24. - 28. október.
meira...

08.10.09 - Andri framlengdi við Hauka til tveggja ára

Andri Marteinsson þjálfari Hauka skrifaði nú í hádeginu undir nýjan tveggja ára samning við Hafnarfjarðarliðið. Andri hefur verið við stjórnvölinn hjá Haukum undanfarin ár en hann tók við liðinu þegar það var í 2. deild og í síðasta mánuði tryggðu Haukar sér sæti í efstu deild í annað sinn í sögu félagsins.

meira...

07.10.09 - Jóhannes Karl tekur við Breiðabliki

Jóhannes Karl Sigursteinsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Breiðabliks í knattspyrnu. Jóhannes Karl hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins síðustu tvö ár. Hann tekur við af Gary Wake sem sagði starfi sínu lausu um helgina þegar keppnistímabilinu lauk.

meira...

07.10.09 - Ný þjálffræðibók í knattspyrnu

Loksins er komin til landsins vönduð þjálffræðibók í knattspyrnu á íslensku. Höfundur bókarinnar er Dr. Jens Bangsbo og fjallar hún um loftháða og loftfirrta þjálfun í knattspyrnu. Dr. Jens Bangsbo hefur m.a. starfað sem aðstoðarþjálfari hjá Juventus og verið í þjálfarateymi danska landsliðsins.

meira...

06.10.09 - Tvö KSÍ II þjálfaranámskeið í október

Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö KSÍ II þjálfaranámskeið á höfuðborgarsvæðinu. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 23. - 25. október og hins vegar 30. október - 1. nóvember. Þátttökurétt hafa allir þeir sem hafa KSÍ I þjálfararéttindi.

meira...

05.10.09 - Freyr besti þjálfarinn

Í kvöld fór fram samkoma knattspyrnumanna við hátíðlega athöfn í Háskólabíói.  Freyr Alexandersson þjálfari Vals var valinn besti þjálfarinn í Pepsideild kvenna en undir hans stjórn fagnaði Valur Íslands - og bikarmeistaratitlinum.
meira...

05.10.09 - Bjarni þjálfari ársins

Í kvöld fór fram samkoma knattspyrnumanna við hátíðlega athöfn í Háskólabíói.  Veittar voru viðurkenningar fyrir knattspyrnuárið 2009.  Bjarni Jóhannsson þjálfari nýliða Stjörnunnar var valinn þjálfari ársins í Pepsideild karla.  
meira...

05.10.09 - Luka Kostic samdi við Grindavík til tveggja ára

 

Luka Kostic þjálfar Grindavík næstu tvö árin en skrifað var undir samning skömmu fyrir lokahóf knattspyrnudeildar félagsins á laugardagskvöldið.  Luka Kostic tók við Grindavíkurliðinu eftir þrjár umferðir í sumar þegar liðið lá á botninum án stiga. Grindavík tókst að halda sæti sínu í deildinni og varð í 9. sæti.

meira...

05.10.09 - Gary Wake hættur sem þjálfari kvennaliðs Breiðabliks

Kvennalið Breiðabliks þarf nú að leita að nýjum þjálfara fyrir næsta sumar eftir að Gary Wake tilkynnti sjórn félagsins að hann væri að flytja erlendis og gæti því ekki stýrt liðinu áfram.

meira...

04.10.09 - Vel heppnaðar ráðstefnur í tengslum við úrlitaleikina í VISA bikarnum

KÞÍ í samvinnu við KSÍ stóðu fyrir ráðstefnum í tengslum við úrslitaleikina í VISA bikarkeppnum karla og kvenna.  Fjöldi knattspyrnuþjálfara mætti á ráðstefnurnar sem þóttu takast mjög vel.
meira...

02.10.09 - Leifur með nýjan samning við Víking

Leifur Sigfinnur Garðarsson þjálfari 1. deildarliðs Víkings í knattspyrnu verður áfram við stjórnvölinn hjá liðinu og hefur hann skrifað undir nýjan samning sem gildir út tímabilið 2011.  Leifur tók við þjálfun Víkingsliðsins fyrir tímabilið og undir hans stjórn hafnaði liðið í 9. sæti. Í fréttatilkynningu frá Víkingi segir;

meira...

30.09.09 - Ólafur Jóhannesson ráðinn til ársloka 2011

Knattspyrnusamband Íslands framlengdi í dag samning við Ólaf Jóhannesson sem landsliðsþjálfara A landsliðs karla og gildir samningurinn til ársloka 2011.  Nýr samningur þess efnis var undirritaður í dag í höfuðstöðvum KSÍ.

meira...

30.09.09 - Guðmundur Benediktsson tekinn við Selfyssingum

Guðmundur Benediktsson hefur verið ráðinn þjálfari Selfyssinga en þetta kom fram á fréttamannafundi í félagsheimilinu Tíbrá nú rétt í þessu. Guðmundur skrifaði undir tveggja ára samning við Selfyssinga en hann mun einnig leika með liðinu.
meira...

29.09.09 - Dagskrá bikarráðstefna á laugardag og sunnudag

Um næstu helgi (3. og 4. október) standa Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands og Knattspyrnusamband Íslands sameiginlega að ráðstefnum í tengslum við bikarúrslitaleiki karla og kvenna. Fram og Breiðablik leika til úrslita í VISA-bikar karla laugardaginn 3. október kl. 14:00 og Valur og Breiðablik leika til úrslita í VISA-bikar kvenna sunnudaginn 4. október kl. 14:00.

meira...

29.09.09 - Hlynur Eiríksson áfram með Magna á Grenivík

Hlynur Svan Eiríksson. þjálfari Magna á Grenivík mun halda áfram með félagið, en þetta varð ljóst í morgun.  Hlynur, sem stýrði Magna í sumar í 2. deildinni tók við félaginu síðasta vetur eftir að hafa þjálfað 2. flokkinn hjá Þór á Akureyri.
meira...

29.09.09 - Tómas Ingi ráðinn þjálfari HK

Tómas Ingi Tómasson var í dag ráðinn þjálfari 1. deildarliðs HK í knattspyrnu en hann tekur við af Rúnari Pál Sigmundssyni sem hætti störfum með liðið á dögunum.

meira...

29.09.09 - Steinar Ingimundarson hættur hjá Víði Garði

Steinar hefur stýrt Víði undanfarin þrjú ár og náð góðum árangri. Á fyrsta ári kom hann liðinu upp úr 3.deild og í fyrra munaði litlu að Víðismenn kæmust upp í 1.deild. Í ár endaði liðið síðan í níunda sætinu í 2.deildinni.
 
meira...

28.09.09 - Willum tekur við Keflvík

Willum Þór Þórsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Keflavíkur í knattspyrnu. Hann tekur við af Kristjáni Guðmundssyni. Samningur Willum við Keflavíkurliðið er til tveggja ára og verður formlega gengið frá honum á næstu dögum, að sögn Þorsteins Magnússonar, formanns Knattspyrnudeildar Keflavíkur.

meira...

28.09.09 - Kristján ekki áfram með Keflavík

Kristján Guðmundsson verður ekki áfram þjálfari knattspyrnuliðs Keflvíkinga eftir að hafa stýrt því undanfarin fimm ár. Þetta var niðurstaðan á stjórnarfundi knattspyrnudeildar Keflavíkur sem lauk fyrir stundu.

meira...

28.09.09 - Bikarúrslitaráðstefnur KSÍ og KÞÍ 3. og 4. október

Eins og undanfarin ár verða haldnar bikarúrslitaráðstefnur í tengslum við úrslitaleiki í VISA bikar karla og kvenna.  Úrslitaleikirnir fara fram sömu helgina að þessu sinni, laugardaginn 3. október leika Fram og Breiðablik hjá körlum en sunnudaginn 4. október mætast Valur og Breiðablik hjá konum.

meira...

28.09.09 - Ejub ráðinn þjálfari Víkings Ólafsvík

Ejub Purisevic hefur verið ráðinn þjálfari Víkings Ólafsvíkur að nýju en Ejub þjálfaði liðið árin 2003-2008 með góðum árangri. Samningurinn nær til tveggja ára og mun Ejub því þjálfa liðið næstu tvö tímabil og freista þess að koma liðinu aftur upp í 1. deild.

meira...

28.09.09 - Íris Björk hætt með KR-liðið - á leið í nám

Íris Björk Eysteinsdóttir tilkynnti leikmönnum kvennaliðs KR eftir leikinn við Þór/KA í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í gær að hún myndi ekki halda áfram þjálfun liðsins. Íris er að fara í nám og hefur því ekki tök á að þjálfa liðið áfram. Þetta kom fram á heimasíðu KR-inga.

meira...

28.09.09 - Óli Stefán ætlar að þjálfa Sindra næsta sumar

Óli Stefán Flóventsson hefur ákveðið að hætta spila með Grindavík í Pepsi-deild karla og tekur í staðinn við D-deildarliði Sindra frá Höfn í Hornafirði. Þetta kemur fyrst fram á fótbolti.net. Hann ætlar einnig að spila með liðinu næsta sumar.

meira...

26.09.09 - Páll Einarsson tekur við Þrótti

Stjórn knattspyrnudeildar Þróttar og Páll Einarsson gengu í gær frá samningi þess efnis að Páll þjálfi meistarflokk karla hjá félaginu næstu tvö árin í það minnsta.
meira...

26.09.09 - Þórðar Þórðarson áfram þjálfari ÍA

Í gær var undirritaður samningur milli Þórðar Þórðarsonar og Knattspyrnufélags ÍA um að Þórður haldi áfram þjálfum meistaraflokks liðsins í knattspyrnu auk þess sem hann mun sinna ýmsum öðrum verkefnum í knattspyrnulegri uppbyggingu félagsins sem yfirþjálfari. 

meira...

24.09.09 - Success in Soccer og húfan brátt á leið til félagsmanna

Eins og sagt var frá á greiðsluseðlinum fyrir félagsgjaldi KÞÍ fyrir árið 2009 sem félagsmönnum KÞÍ barst í lok júlí, þá munu þeir sem greiða félagsgjald KÞÍ fyrir árið 2009 fá eitt eintak af tímaritinu Success in Soccer og prjónahúfu með meki KÞÍ á. 
meira...

24.09.09 - Samkoma knattspyrnumanna 2009

Verðlaun og viðurkenningar fyrir keppnistímabilið 2009 verða afhentar á samkomu knattspyrnumanna sem haldin verður í Háskólabíói mánudaginn 5. október næstkomandi. 

Formleg dagskrá hefst kl. 18:00, en húsið opnar kl. 17:30 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar en gert er ráð fyrir að dagskrá ljúki um kl. 20:30.  Veitt verða eftirfarandi verðlaun og viðurkenningar:

 

meira...

23.09.09 - Kristófer áfram í brúnni

Stjórn knattspyrndudeildar Reynis og  Kristófer Sigurgeirsson hafa komist að samkomulagi um áframhaldandi samstarf. Kristófer tók við sem spilandi þjálfari síðastliðin vetur eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari hjá Fjölni í 4. ár. Á hans fyrsta tímabili fór hann með Reyni alla leið í úrslitaleik gegn Njarðvík um sæti í 1. deild að ári.
meira...

22.09.09 - Rúnar hættur hjá HK

Rúnar Páll Sigmundsson er hættur þjálfun 1. deildarliðs HK þar sem hann mun ætla að flytja til Noregs.  Fram kemur á mbl.is í dag að þetta hafi verið tilkynnt leikmönnum nú í hádeginu.

meira...

21.09.09 - Jens Elvar þjálfar Hvöt áfram á næsta tímabili

Jens Elvar Sævarsson mun þjálfa Hvöt áfram á næsta tímabili en gengið var frá samningi þess efnis á lokahófi félagsins um helgina.  Jens Elvar lék með Hvöt hluta af sumars í fyrra og hann var síðan ráðinn þjálfari liðsins í janúar síðastliðnum.
meira...

21.09.09 - Dragan Stojcanovic þjálfar Þór/KA áfram

Þór greindi frá því á vefsíðu sinni í dag að félagið hafi komist að samkomulagi við Dragan Stojanovic þjálfara Þór/KA um að hann haldi áfram þjálfun liðsins næsta árið.   Lið Þór/KA hefur heldur betur blómstrað undir stjórn Dragans. Á síðasta tímabili náði lið Þór/KA góðum árangri er liðið hafnaði í 4. sæti. Þegar einn leikur er eftir af tímabilinu, hefur liðið þegar bætt árangur síðasta árs svo um munar.
meira...

19.09.09 - Formsatriði að skrifa undir

Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir aðeins formsatriði að ganga frá nýjum samningi sambandsins við Ólaf Jóhannesson, landsliðsþjálfara. Sjálfur hefur Ólafur mikinn hug á að halda áfram en undir hans stjórn varð liðið í neðsta sæti síns riðils í undankeppni HM 2010.
meira...

18.09.09 - Fræðslukvöld ÍSÍ fimmtudaginn 24. september

Fyrsta fræðslukvöld ÍSÍ í Reykjavík haustið 2009 verður haldið fimmtudaginn 24. september næstkomandi frá kl. 17.00-21.00.  Fræðslukvöldið er öllum opið og er jafnframt liður í 2. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ, almenns hluta. 

meira...

18.09.09 - Salih Heimir Porca og Kjartan Einarsson áfram með Hauka

Salih Heimir Porca verður áfram þjálfari kvennaliðs Hauka á næstu leiktíð en hann hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.  Þá hefur Kjartan Einarsson aðstoðarmaður hans einnig skrifað undir tveggja ára samning við félagið en þetta var tilkynnt nú í kvöld.
meira...

16.09.09 - Tvö KSÍ I þjálfaranámskeið verða haldin í október

Knattspyrnusamband Íslands mun á næstu vikum halda tvö 1. stigs þjálfaranámskeið. Annars vegar er um að ræða námskeið sem haldið verður helgina 9.-11. október og hins vegar námskeið sem haldið verður helgina 16.-18. október.

meira...

15.09.09 - Markmannsnámskeið Gunnleifs Gunnleifssonar

Gunnleifur Gunnleifsson landsliðsmarkvörður stendur fyrir markmannsnámskeiði í knattspyrnuhúsinu Kórnum næstu vikurnar.  Farið verður yfir alla meginþætti markvörslu og þátttakendum skipt í tvennt - Eldri og yngri hóp.  Í eldri hópnum eru markmenn 13 ára og eldri, en í þeim yngri markmenn 8-12 ára. Óvæntir gestir og glaðningur.

meira...

14.09.09 - Ólafur áfram með Blika

Ólafur Kristjánsson mun halda áfram að þjálfa lið Breiðabliks í Pepsi-deild karla en hann gekk frá þriggja ára samningi við félagið í kvöld.  Undir hans stjórn hefur liðið náð góðum árangri í Pepsi-deild karla og er þar að auki komið í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn síðan 1971. Blikar eru með ungt lið og misstu marga af byrjunarliðsmönnum sínum frá því í fyrra.

meira...

14.09.09 - Gunnlaugur klárar ekki tímabilið með Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss og Gunnlaugur Jónsson hafa sent frá sér yfirlýsingu þess efnis að Gunnlaugur mun ekki stýra liði Selfoss í lokaleik tímabilsins um næstu helgi. Greint var frá því á laugardaginn að Valur hefði ráðið Gunnlaug til að taka við þjálfun síns liðs. Selfoss lék á sama tíma við Hauka í næstsíðustu umferð 1. deildar karla og komu fréttirnar leikmönnum Selfyssinga í opna skjöldu.

meira...

04.09.09 - Háttvísidagar FIFA 2009

FIFA stendur nú fyrir sérstökum háttvísidögum í 13. sinn, en þeir voru fyrst haldnir árið 1997.  Að þessu sinni urðu dagarnir 5. til 9. september fyrir valinu, en á því tímabili eru einmitt tveir landsleikjadagar.  Háttvísidagarnir eru haldnir hátíðlegur á ýmsan hátt víðs vegar um heiminn, allt frá grasrótarknattspyrnu og til A-landsleikja.

meira...

19.08.09 - KSÍ þjálfaranámskeið í haust 2009

Núna stendur yfir undirbúningur hjá fræðsludeild KSÍ fyrir þjálfaranámskeiðin sem fyrirhuguð eru nú á haustmánuðum.

Skráning opnar þremur vikum fyrir námskeiðin. Þeir sem vilja fá tölvupóst þegar opnað verður fyrir skráningu er bent á að skrá sig á póstlista KSÍ hér: http://www.ksi.is/fraedsla/postlisti/

meira...

10.08.09 - Vel heppnuð ferð til Ukraínu

Hluti stjórnar og landshlutatengiliða KÞÍ hélt til Kiev í Úkraínu mánudaginn 5. ágúst s.l. og dvaldi til föstudagsins 8. ágúst og tók þátt í verkefni á vegum UEFA sem kallast "UEFA study scheme" og snýst um að hjálpa aðildarþjóðum UEFA að læra af hvoru öðru á sviði kvennaknattspyrnu, knattspyrnu yngri flokka, grasrótarfótbolta og þjálfaramenntunar. 
meira...

01.08.09 - Ráðstefna á vegum UEFA í Kiev í Úkraínu

Í fyrra samþykkti KSÍ að taka þátt í risastóru fræðsluverkefni á vegum UEFA sem verður í gangi næstu 4 árin. Verkefnið kallast "UEFA study scheme" og snýst um að hjálpa aðildarþjóðum UEFA að læra af hvoru öðru á sviði kvennaknattspyrnu, knattspyrnu yngri flokka, grasrótarfótbolta og þjálfaramenntunar.

meira...

20.07.09 - Greiðsluseðlar fyrir félagsgjaldinu að berast - prjónahúfa og Success in Soccer til þeirra sem greiða fyrir 10. október

Nú fer knattspyrnuþjálfurum um allt land að berast greiðsluseðill vegna félagsgjaldsins fyrir árið 2009. Stjórn KÞÍ vonar að félagsmenn bregðist jafn vel við og hingað til og greiði greiðsluseðilinn sem allra fyrst. Allir þeir sem greiða félagsgjaldið fyrir 10. október 2009 munu fá  vandaða prjónahúfu með merki KÞÍ á og eitt eintak af tímaritinu Success in Soccer sem er tímarit um knattspyrnuþjálfun.
meira...

15.07.09 - Heiðursáskrift að bók í tilefni af 50. bikarkeppni KSÍ

Í tilefni af fimmtugasta bikarúrslitaleik KSÍ, sem fram fer í haust, ákvað stjórn KSÍ á sínum tíma að skrá sögu keppninnar og fékk til verksins Skapta Hallgrímsson blaðamann.  Gert er ráð fyrir veglegri útgáfu þar sem bókin verður um 300 bls. auk þess sem DVD-diskur með myndefni úr keppninni, mörkum úr úrslitaleikjum o.fl.,fylgir bókinni. 

meira...

07.07.09 - Guðmundur Guðmundsson heldur fyrirlestur fyrir KSÍ A og UEFA A þjálfara

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, heldur fyrirlestur fyrir KSÍ A og UEFA A þjálfara sunnudaginn 12. júlí kl. 12:30-14:30. Fyrirlesturinn verður haldinn í höfuðstöðvum KSÍ, 3. hæð.

Fyrirlesturinn er eingöngu opinn þjálfurum með KSÍ A og/eða UEFA A þjálfaragráðu og er hluti af endurmenntun þeirra þjálfara.

meira...

06.07.09 - Rúmlega 40 þjálfarar hlýddu á Lars Lagerback

Um síðustu helgi heimsótti Lars Lagerback, A-landsliðsþjálfari Svíþjóðar, landann og hélt námskeið fyrir KSÍ A og UEFA A þjálfara. Námskeiðið er hluti af endurmenntun á A-gráðunni en eina leiðin fyrir KSÍ A þjálfara til að endurnýja réttindi sín er að sækja sérstök endurmenntunarnámskeið á vegum KSÍ.

meira...

26.06.09 - Janus fer til Pforzheim á ráðstefnu

Janus Guðlaugsson fer á ráðstefnu þýska knattspyrnuþjálfarafélagsins í Pforzheim 27. júlí - 29. júlí í sumar.  Þýska knattspyrnuþjálfarafélagið býður KÞÍ að senda einn fulltrúa og sér um allt uppihald. Ráðstefnan mun að mestu leyti fjalla um hæfileikamótun leikmanna á vísindalegum grunni sett inn í æfingar og einnig verður lögð áhersla á stöðuæfingar í þjálfun í varnar- og sóknarleik.  Janus mun skila skýrslu frá ráðstefnunni fljótlega að henni lokinni.
meira...

25.06.09 - 27 þjálfarar útskrifuðust með KSÍ A þjálfaragráðu

Laugardaginn 6. júní útskrifuðust 27 þjálfarar með KSÍ A þjálfaragráðu, en KSÍ A þjálfaragráðan er hæsta gráða sem Knattspyrnusamband Íslands býður upp á í sínu þjálfaramenntunarkerfi.

meira...

19.06.09 - KSÍ A (UEFA A) endurmenntunarnámskeið

Föstudaginn 3. júlí og laugardaginn 4. júlí mun Knattspyrnusamband Íslands halda endurmenntunarnámskeið fyrir KSÍ A (UEFA A) þjálfara í höfuðstöðvum KSÍ. Námskeiðið er eingöngu opið þjálfurum sem hafa KSÍ A eða UEFA A þjálfaragráðu.

meira...

19.06.09 - Tveir nýir starfsmenn KSÍ

KSÍ hefur ráðið til starfa tvo nýja starfsmenn í sérstök átaksverkefni og er um tímabundnar ráðningar að ræða.  Annars vegar er um verkefni í mótadeild að ræða sem snýr að skráningu á leikskýrslum, en hins vegar um útbreiðsluverkefni.
meira...

18.06.09 - Sænskur unglingaþjálfari með fyrirlestur

Sunnudaginn 28. júní mun sænskur þjálfari að nafni Eijlert Björkman halda fyrirlestur í höfuðstöðvum Knattspyrnusambands Íslands. Eijlert Björkman er starfandi þjálfari í unglingaakademíunni hjá IFK Göteborg en þar hefur hann starfað undanfarin 15 ár við þjálfun barna og unglinga.
meira...

09.06.09 - Ráðstefna þýska knattspyrnuþjálfarafélagsins í Pforzheim

Knattspyrnuþjálfarafélagi Íslands hefur verið boðið að senda einn fulltrúa á ráðstefnu þýska knattspyrnuþjálfarafélagsins í Pforzheim 27. júlí - 29. júlí í sumar. Ráðstefnan mun að mestu leyti fjalla um hæfileikamótun leikmanna á vísindalegum grunni sett inn í æfingar og einnig verður lögð áhersla á stöðuæfingar í þjálfun í varnar- og sóknarleik.
meira...

08.06.09 - Nútímaleg líkamleg þjálfun

Sænska Knattspyrnuakademían heldur námskeið um Nútíma líkamlega þjálfun 26. september í haust.  Meðal fyrirlesara verður Jens Bangsbo sem kom fyrir nokkrum árum hingað til lands og hélt námskeið fyrir íslenska knattspyrnuþjálfara.  Nánar um námskeiðið má sjá hér neðar.
 
 
 
meira...

04.06.09 - Fyrirhuguðu Grasrótarnámskeiði frestað

Ákveðið hefur verið að fresta fyrirhuguðu Grasrótarnámskeiði fyrir þjálfara sem átti að fara fram sunnudaginn 7. júní.  Ljóst var að ekki mundi nást viðunandi fjöldi á námskeiðið og því ákveðið að fresta því.  Skoðað verður síðar hvort að grundvöllur verður fyrir að halda þetta námskeið síðar.
meira...

03.06.09 - KSÍ A (UEFA A) endurmenntunarnámskeið

Helgina 3.-5. júlí mun Knattspyrnusamband Íslands halda endurmenntunarnámskeið fyrir KSÍ A (UEFA A) þjálfara. Námskeiðið er eingöngu opið þjálfurum sem hafa KSÍ A eða UEFA A þjálfaragráðu.

meira...

27.05.09 - Grasrótarnámskeið fyrir þjálfara 7. júní

Sunnudaginn 7. júní mun KSÍ standa fyrir Grasrótarnámskeiði fyrir þjálfara.  Námskeiðið er opið öllum þjálfurum, en hentar mjög vel þjálfurum yngri flokka og kennurum og aðstoðarmönnum í knattspyrnuskólum félaga. Því eru félög sem starfrækja knattspyrnuskóla í sumar eindregið hvött til að senda kennarana og aðstoðarmenn þeirra á þetta námskeið og jafnframt aðra sem koma að starfi í knattspyrnuskólum.

meira...

27.05.09 - Fyrirspurn frá KÞÍ til fræðslunefndar KSÍ

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands sendi fyrir hönd félagsmanns síns fyrirspurn til fræðslunefndar KSÍ um einstök atriði sem fram koma í starfsreglum fræðslunefndar KSÍ.  Svör við fyrirspurninni má sjá hér fyrir neðan.
 
meira...

07.05.09 - Menntun þjálfara í Pepsi-deild og 1. deild kvenna

Fræðsludeild KSÍ hefur tekið saman upplýsingar um þá þjálfaramenntun sem þjálfarar í Pepsi-deild kvenna og 1. deild kvenna hafa yfir að ráða í upphafi keppnistímabilsins.

meira...

06.05.09 - Atli Eðvaldsson með UEFA Pro Licence

Nú á dögunum útskrifaðist Atli Eðvaldsson úr Pro Licence námi hjá þýska knattspyrnusambandinu og er því þriðji Íslendingurinn sem er handhafi UEFA Pro Licence skírteinis.  Hinir eru Teitur Þórðarson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson. 

Námið var viðamikið og stóð yfir í 11 mánuði og fluttist Atli til Þýskalands vegna þess.  Nám Þjóðverjanna snertir á flestum flötum knattspyrnunnar og útskrifa þeir nemendur sína sem "Fussball Lehrer".

meira...

02.05.09 - Gögn frá 29. ráðstefnu AEFCA í Frankfurt 2008.

Ráðstefnu evrópska knattspyrnuþjálfarafélagsins (AEFCA) var haldin í Frankfurt í Þýskalandi 25. - 29. október 2008. Fyrir hönd Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands sóttu Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður KÞÍ og Ómar Jóhannsson gjaldkeri KÞÍ ráðstefnuna. Hér fyrir neðan má finna ýmis gögn frá ráðstefnunni.
 
meira...

01.05.09 - Ráðstefna AEFCA í Frankfurt í Þýskalandi

Ráðstefnu evrópska knattspyrnuþjálfarafélagsins var haldin í Frankfurt 25. - 29. október 2008. Fyrir hönd Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands sóttu Sigurður Þórir Þorsteinsson formaður KÞÍ og Ómar Jóhannsson gjaldkeri KÞÍ ráðstefnuna. Hér fyrir neðan má sjá skýrslu þeirra félaga frá ráðstefnunni.
 
meira...

28.04.09 - Starfsmenn óskast

Stjórn KSÍ hefur ákveðið að í leikjum 3. deildar karla og 1. deildar kvenna skipi KSÍ dómara og aðstoðadómara til leiks í stað eldra fyrirkomulags þar sem heimalið sá um að leggja til aðstoðardómara.

meira...

28.04.09 - Kennarar af þjálfaranámskeiðum til Noregs

Dagana 4.-7. maí fer hópur kennara af þjálfaranámskeiðum KSÍ í heimsókn til norska knattspyrnusambandsins í þeim tilgangi að kynna sér fyrirkomulag Norðmanna í menntun þjálfara. Ferðin er hluti af UEFA Study Group Scheme sem sett var á laggirnar á síðasta ári. En með því verkefni gerir UEFA öllum knattspyrnusamböndum í Evrópu kleift að heimsækja önnur knattspyrnusambönd og kynna sér starfsemi þeirra. Hámarksfjöldi í slíkar ferðir er 11 manns.
meira...

27.04.09 - Þjálfarferð til Watford

Ásgrímur Helgi Einarsson þjálfari mfl. karla og Birgir Jónasson yfirþjálfari drengja flokka á Álftanesi fóru í þjálfaraferð til Watford á Englandi, hér fyrir neðan má sjá skýrslu þeirra félaga.
 
meira...

21.04.09 - KSÍ V fellur niður um næstu helgi

Vegna dræmrar skráningar hefur verið ákveðið að fresta fyrirhugðu KSÍ V þjálfaranámskeiði sem átti vera um næstu helgi (24.-26. apríl). Ákvörðun um nýja dagsetningu námskeiðsins verður tekin næsta haust. KSÍ V þjálfaranámskeið var haldið tvisvar á síðasta ári og gæti það verið skýringin á dræmri þátttöku að þessu sinni.

meira...

21.04.09 - Rannsóknarstyrkur FIFA

Knattspyrnusamband Íslands vill vekja athygli á rannsóknarstyrk Joao Havelange frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu (FIFA) sem í boði er fyrir rannsóknir á sviði knattspyrnunnar. Nánari upplýsingar um styrkinn má nálgast hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Við hvetjum alla áhugasama um að sækja um styrkinn.

meira...

07.04.09 - Námskeið í þjálfun barna - Haldið í Kórnum

Laugardaginn 18. apríl munu Knattspyrnusamband Íslands og Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) standa saman að námskeiði sem haldið verður í Kórnum í Kópavogi. Námskeiðið er sérstaklega ætlað þjálfurum barna á aldrinum 6-12 ára en námskeiðið er þó öllum opið. Aðgangur er ókeypis.

meira...

07.04.09 - Námskeið í þjálfun barna - Haldið á Akureyri

Sunnudaginn 19. apríl munu Knattspyrnusamband Íslands og Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) standa saman að námskeiði sem haldið verður í Glerárskóla og Boganum á Akureyri. Námskeiðið er sérstaklega ætlað þjálfurum barna á aldrinum 6-12 ára en námskeiðið er þó öllum opið. Aðgangur er ókeypis.

meira...

31.03.09 - Homeground 2 komið til landsins

Þjálfaraforritið Homeground 2 er nú komið til landsins og stendur þjálfurum hér landi til boða. Forritið er á ensku og inniheldur nokkrar viðbætur frá því gamla. Þeir þjálfarar sem fengið höfðu gamla forritið hjá KSÍ, hvort sem þeir fengu það á þjálfaranámskeiði eða keyptu það eitt og sér, geta sótt forritið hér fyrir neðan og fengið fría uppfærslu. Þegar búið er að vista forritið í tölvuna geta þjálfarar sótt um að fá nýtt aðgangsorð með því að senda tölvupóst á dagur@ksi.is.

meira...

31.03.09 - Þjálfaranámskeið í vor og haust

Helgina 24.-26. apríl mun Knattspyrnusamband Íslands halda 5. stigs þjálfaranámskeið.  Þátttökurétt á það námskeið hafa allir þjálfarar sem lokið hafa KSÍ I, KSÍ II, KSÍ III, KSÍ IV, skilað verkefni af KSÍ III og fengið það samþykkt og fengið að lágmarki 70 stig í skriflega KSÍ B prófinu.

meira...

26.03.09 - KSÍ stofnað á þessum degi fyrir sextíu og tveimur árum

Í dag, miðvikudaginn 26. mars, er Knattspyrnusamband Íslands 62 ára.  Fjórtán félög og íþróttabandalög stofnuðu KSÍ 26. mars 1947 og var Agnar Klemens Jónsson fyrsti formaður KSÍ.  Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands óskar KSÍ til hamingju með daginn.
meira...

26.03.09 - Málþing um íþróttaáverka

Fræðslusvið KSÍ vill vekja athygli á áhugaverðu málþingi um íþróttaáverka.  Málþingið verður haldið í Iðnó við Vonarstræti á morgun, föstudag. Upplýsingar um málþingið er að finna hér að neðan.
meira...

26.03.09 - Fræðslukvöld ÍSÍ - Íþróttameiðsl

ÍSÍ boðar til fræðslukvölds í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal kl. 17.00 - 21.00 í dag, fimmtudaginn 26. mars.  Stefán Ólafsson sjúkraþjálfari mun fjalla um fjölmarga athyglisverða þætti er varða íþróttameiðsl, m.a. algengustu meiðsl og viðbrögð við þeim, fyrirbyggjandi æfingar, teipingar og vafninga ásamt samvinnu íþrótta- og sjúkraþjálfara svo eitthvað sé nefnt. 
meira...

23.03.09 - Ráðstefna um íþróttalæknisfræði 2. - 4. apríl

Dagana 2.-4. apríl mun Heilbrigðisráð ÍSÍ standa fyrir ráðstefnu um íþróttalæknisfræði. Ráðstefnan er haldin í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal (E-sal). Að þessu sinni verður megin áhersla lögð á íþróttasálfræði.

meira...

20.03.09 - Stefnumótunarvinna fyrir næstu ár

Stjórn KÞÍ er að vinna í stefnumótunar vinnu fyrir næstu ár og hefur af því tilefni sent spurningalista til félagsmanna KÞÍ.  Svörin hafa verið að berast og um helgina mun stjórn KÞÍ koma saman og vinna verkefnið áfram.
meira...

19.03.09 - KSÍ heldur 7. stigs þjálfaranámskeið

Miðvikudaginn 25. mars kl. 16:15 fer af stað KSÍ VII þjálfaranámskeið, en það er lokastigið í UEFA A (KSÍ A) þjálfaragráðunni.  Farið verður yfir námskeiðið á fundi í höfuðstöðvum KSÍ.

meira...

18.03.09 - Þjálfun erlendis - Hvað getum við lært?

Á haustmánuðum var haldin sameiginleg ráðstefna KSÍ og ÍSÍ undir yfirskriftinni Þjálfun erlendis – hvað getum við lært?   Ráðstefnan var haldin í höfuðstöðvum KSÍ og á hana mættu 60 manns.

meira...

25.02.09 - Skráning hafin í KSÍ B prófið

Laugardaginn 14. mars stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er fyrir alla þjálfara sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).
meira...

25.02.09 - KSÍ IV haldið á Akureyri

Helgina 27. febrúar til 1. mars mun Knattspyrnusamband Íslands halda 4. stigs þjálfaranámskeið á Akureyri.  Þátttökurétt á námskeiðið hafa allir sem lokið hafa KSÍ I, KSÍ II og KSÍ III þjálfaranámskeiðum og skilað fullnægjandi verkefni af KSÍ III.
meira...

23.02.09 - KSÍ óskar eftir lokaverkefnum tengdum knattspyrnu

Knattspyrnusamband Íslands óskar eftir að fá í hendur og birta þær lokaritgerðir sem nemendur á háskólastigi hafa gert á sviði knattspyrnu. Ritgerðirnar yrðu birtar á fræðsluvef KSÍ.

meira...

23.02.09 - KSÍ B próf fer fram 14. mars

Prófað er úr öllu námsefni KSÍ I, II, III og IV og úr nýjustu útgáfu af knattspyrnulögunum

Laugardaginn 14. mars stendur fræðslusvið KSÍ fyrir KSÍ B prófi (UEFA B prófi). Prófið er fyrir alla þjálfara sem hafa klárað KSÍ I, II, III og IV og skilað öllum verkefnum á fullnægjandi hátt (engar undantekningar eru gerðar).

meira...

19.02.09 - Dagskrá KSÍ III þjálfaranámskeiðsins

Knattspyrnusamband Íslands heldur um helgina 3. stigs þjálfaranámskeið. Dagskrá námskeiðsins er hér fyrir neðan en námskeiðið fer fram í höfuðstöðvum KSÍ, Egilshöll og í Kórnum í Kópavogi.

meira...

14.02.09 - Pistill frá Sigurði Þóri Þorsteinssyni formanni KÞÍ

Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands (KÞÍ) var stofnað 13. nóvember árið 1970 fyrir tilstuðlan Alberts Guðmundssonar þess merka knattspyrnumanns en hann var fyrstur Íslendinga til að gerast atvinnumaður í knattspyrnu erlendis og fögnum við því að stefnt sé að því að reisa honum minnisvarða fyrir framan höfuðstöðvar Knattspyrnusambandsins. 
meira...

05.02.09 - KSÍ III þjálfaranámskeið í Reykjavík

Helgina 20.- 22. febrúar mun Knattspyrnusamband Íslands halda 3. stigs þjálfaranámskeið í höfuðstöðvum KSÍ. Dagskrá námskeiðsins verður gefin út síðar en skráning er í fullum gangi.
meira...

03.02.09 - Námskeið - Íþróttasálfræði

Á námskeiðinu, sem ætlað er íþróttafræðingum, sálfræðingum, þjálfurum og öðrum áhugasömum, verður farið yfir helstu grunnatriði íþróttasálfræðinnar. Fjallað verður um kenningar í íþróttasálfræði og hvernig þeir sem starfa með íþróttamönnum geta nýtt þær kenningar til að bæta árangur íþróttamanna.

meira...

02.02.09 - Námskeið - Árangursrík liðsheild: Leiðin að silfrinu

Á þessu hnitmiðaða þjálfunarnámskeiði mætast sjónarmið afreksíþrótta og stjórnunar í kraftmikilli blöndu tveggja reyndra leiðbeinenda.
meira...

26.01.09 - 30 þjálfarar luku KSÍ VI

Dagana 16. - 23. janúar stóð Knattspyrnusamband Íslands fyrir 6. stigs þjálfaranámskeiði í Lilleshall á Englandi.  30 þjálfarar sátu námskeiðið að þessu sinni.
meira...

14.01.09 - Þjálfararáðstefna í Englandi

Fullgildir meðlimir í KÞÍ eiga þess kost að slást í för með norska þjálfarafélaginu til Englands á þjálfararáðstefnu og fylgjast með  þjálfun og leikjum. Ferðin verður farin 23. febrúar og formlegri dagskrá lýkur 27. febrúar 2009.
meira...

14.01.09 - Breytt dagsetning á KSÍ III þjálfaranámskeiði

KSÍ III þjálfaranámskeið sem halda átti helgina 6.-8. febrúar hefur verið fært aftur um tvær vikur og verður haldið helgina 20.-22. febrúar. Þessi breyting er tilkomin vegna úrslitakeppni yngri flokka í innanhúsknattspyrnu sem haldin verður 6.-8. febrúar.

meira...

09.01.09 - Mælt með umsóknum Willums og Þorvaldar á UEFA Pro Licence

Fjórir íslenskir þjálfarar sendu inn umsókn á UEFA Pro Licence námskeið á Englandi. Nýverið samþykkti Knattspyrnusamband Englands að leyfa KSÍ að senda tvær umsóknir á UEFA Pro þjálfaranámskeið sitt og að þessu sinni ákvað fræðslunefnd KSÍ að mæla með umsóknum Willums Þórs Þórsssonar, þjálfara Vals, og Þorvaldar Örlygssonar, þjálfara Fram.

meira...

29.12.08 - Yfir 70 þjálfarar hlýddu á Albert Capellas

Yfir 70 knattspyrnuþjálfarar mættu í Fífuna í gær þar sem Albert Capellas yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona hélt fyrirlestra og stjórnaði æfingum.
 
meira...

29.12.08 - Íslendingar þurfa að spila boltanum meira

 
 
Albert Capellas yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona hélt fyrirlestra og stjórnaði æfingum í Fífunni í gær en yfir 70 þjálfarar mættu til að hlýða á hann og sjá æfingarnar sem hann hafði fram að færa.
 
meira...

23.12.08 - Íslensk knattspyrna 2008 komin út

Íslensk knattspyrna eftir Víði Sigurðsson er einstakur bókaflokkur en þar er að finna allan fróðleik um knattspyrnuiðkun ársins. Allir leikir, öll úrslit, öll mörk, allir markaskorarar, og ótrúlega margar ljósmyndir – í raun allt sem þú þarft að vita um knattspyrnu.  Bók ársins 2008 er 16 síðum stærri en bókin í fyrra, enda hefur fjölgað í efstu deildum. Bókin er gefin út í samstarfi við Knattspyrnusamband Íslands.
meira...

22.12.08 - Yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona í Fífunni

Albert Capellas yfirþjálfari barna- og unglingastarfs Barcelona heldur fyrirlestra og stjórnar æfingum í Fífunni 28. desember næstkomandi.  Hann er hér í boði Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands.
meira...

04.12.08 - Íslenskir þjálfarar fá aðgang að Pro licence í Englandi

Enska knattspyrnusambandið samþykkti í dag að veita þjálfurum á Íslandi aðgang að Pro licence þjálfaranámskeiði sínu. Pro þjálfaragráðan er viðurkennd í öllum löndum Evrópu, er æðsta stig þjálfaramenntunar sem UEFA samþykkir og veitir réttindi til að þjálfa öll lið í öllum deildum í Evrópu. Möguleiki er á því að tveir þjálfarar frá Íslandi geti komist strax á næsta Pro licence námskeið en Enska knattspyrnusambandið mun velja inn á það strax um miðjan janúar.
 
meira...
Þjálfarastörf