Ásgrímur Helgi hættur með Aftureldingu
Ásgrímur Helgi Einarsson er hættur sem þjálfari Aftureldingar. Þetta staðfesti hann sjálfur við Fótbolta.net rétt í þessu en frétt þessa efnis hafði birst á mbl.is fyrir skömmu.,,Ég óskaði eftir þessu sjálfur af persónulegum ástæðum," sagði Ásgrímur Helgi við Fótbolta.net í dag.
,,Þegar ég tók við liðinu var konan mín nýtekin við þremur flokkum hjá Álftanesi og við ætluðum að láta það ganga upp."
,,Við erum með unga stráka og einn átta mánaða og einfaldlega gekk ekki saman. Þessi ákvörðun var tekin fyrir tveimur dögum og það stóð ekki til að tilkynna þetta strax á meðan félagið leitar að eftirmanni mínum."
Frétt frá Fótbolta.net.
23. Jul. 2010 kl.16:11
Til baka...
Til baka...


