Logi Ólafsson hættur hjá KR - Rúnar tekinn við

Logi Ólafsson hefur verið rekinn sem þjálfari KR þetta staðfesti Kristinn Kjærnested formaður knattspyrnudeildar KR.  Hann staðfesti að Rúnar Kristinsson taki við og Pétur Pétursson verða honum til aðstoðar.

Gengi KR-inga hefur verið afleitt í sumar og gerði liðið jafntefli við Hauka í gær 3-3. Liðið situr í níunda sæti með 13 stig eftir 12. umferðir sem er ekki nægilega gott að mati KR-inga.

Liðinu var spáð sigri í Pepsi deildinni af öllum fyrir mót en ekkert hefur gengið.

Logi tók við KR sumarið 2007 þegar Teitur Þórðarson var rekinn og hefur átt ágætis gengi að fagna.

Hann varð Bikarmeistari með liðið 2008 og þá átti liðið frábæran sprett síðari hluta síðasta sumars.

Logi hóf þjálfaraferil sinn árið 1987 er hann þjálfaði kvennalið Vals í tvö ár en þaðan lá leiðin til Víkinga sem hann þjálfaði árin 1990-1992 og gerði liðið að Íslandsmeisturum 1991.

1993-1994 þjálfaði hann kvennalandslið Íslands og árið 1995 stýrði hann ÍA og gerði liðið að Íslandsmeisturum. Árið eftir tók hann við landsliði Íslands og stýrði þeim 1996-1997 og fór þaðan aftur til ÍA 1997 og 1998.

Hann tók svo við FH og stýrði liðinu ásamt því að stýra kvennalandsliðinu árið 2000. Hann hætti hjá FH eftir tímabilið 2001 og varð aðstoðarþjálfari Lilleström. Hann tók svo aftur við Íslenska landsliðinu eftir að hann kom heim og stýrði liðinu ásamt Ásgeiri Sigurvinssyni árin 2003-2005.

Fréttatilkynning frá KR:
Knattspyrnudeild KR og Logi Ólafsson hafa í sameiningu komist að þeirri niðurstöðu í ljósi gengis liðsins að Logi Ólafsson hætti þjálfun hjá KR.

KR þakkar Loga Ólafssyni fyrir störf hans fyrir félagið undanfarin fjögur keppnistímabil. Undir hans stjórn varð KR bikarmeistari árið 2008 og náði einum besta árangri í sögu félagsins í Evrópukeppninni 2009.

Við starfi hans tekur tekur Rúnar Kristinsson yfirmaður knattspyrnumála og honum til aðstoðar er Pétur Pétursson

Stjórn Knattspyrnudeildar KR.


Frétt frá Fótbolta.net.
19. Jul. 2010 kl.12:40
Til baka...